Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 127

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 127
Við öxl bensíndælunnar ísak Harðarson: Stokkseyri. Forlagið 1994. 63 bls. Aftan á hlífðarkápu hinnar nýju ljóða- bókar ísaks Harðarsonar stendur skrif- að, að þar sé að finna: „glæný ljóð og ljóðvolgar hendingar, ferskt og brimsalt ljóðmeti". Þar segir einnig, að ljóðin í bókinni séu á „flæðarmáli". Fátt er jafnklisjukennt og umsagnir aftan á bókum nútímaljóðskálda (um „seiðmagn“, „stílgaldur“ og „þanþol tungumálsins“) og því vekja þessi orð aftan á kápu bókar ísaks óvenjulega eft- irvæntingu hjá lesanda. Því miður er það svo, að það er sjaldnast með til- hlökkun sem maður tekur sér í hönd nýja ljóðabók eftir íslenska nútímahöf- unda, allra síst höfunda af gítarkynslóð- inni, ljóðabækur þeirra eru nefnilega næstum aldrei á bundnu máli. Þar er yfirleitt annaðhvort á ferð hreinn og klár prósi, sem búið er að kubba niður í stuttar línur, eða nær eintóm „ljóðlíki“, mismjóar ræmur niður síðurnar sem útlitsins vegna gætu verið ljóð, ef maður kynni ekki að lesa. Unnendur bundins máls finna fátt við sitt hæfi í þessum bókum. Margir hinna nýrri höfunda virðast telja línulengdina eina muninn á ljóði og óljóði: stuttar línur séu ljóðlín- ur, langar línur prósi. Til marks um þetta er nýleg kynning Aðalsteins Ásbergs Sig- urðssonar á skáldskap norræns nútíma- skálds: honum þótti það markvert stíleinkenni, að ljóðlínur skáldsins voru allar á langveginn! Og í útvarpsviðtali fyrir nokkrum misserum sagði Kristín Ómarsdóttir skáldkona, að munurinn á ljóði og prósa í hennar huga væri eink- um „grafískur“. Nú eru bækur nýju skáldanna ekki ætíð vondar bókmenntir, því þau segja eitt og annað fagurt og viturlegt eins og kollegar þeirra fyrr á tíð. Og ekki þarf að örvænta, þótt leirskáldin séu mörg nú um stundir, því vondu skáldin hafa ætíð verið miklu fleiri en góðskáldin. Fyrir nokkrum árum var það sið- venja sumra ritdómara að nefha ljóð nýju skáldanna texta. Nú er sá siður að mestu aflagður, líkt og menn séu orðnir uppgefhir á því að amast við þessari textasmíð í ljóðgervi. Er óskandi, að óljóðaformið verði ekki öllu lengur nær allsráðandi, heldur taki skáldin í ríkara mæh aftur til við að kveða. Það hefur komið á daginn, að flest nýrri skáldanna ráða ekki við óbundna formið. Nálægt mörkum hins óhugsaða Stokkseyri er sjöunda ljóðabók ísaks Harðarsonar. Hann hefur löngum verið mjög óstöðugur í sér sem skáld, en í þessari bók og hinni næstu á undan, Síðustu hugmyndir ftska um lífá þurru, 1989, gætir meira jafnvægis í skáldskap hans. Má nú telja hann í hópi hinna frambærilegri skálda af síðari mönnum, þegar honum tekst best upp. Fremst í nýju bókinni setur Isak ffam eftirfarandi skilgreiningu á orðinu Stokkseyri, í orðabókarstíl: „ 1 kauptún í Árnessýslu, á ströndinni skammt austan Eyrarbakka. 2 staður, stund eða ástand nálægt mörkum hins ósýnilega, óhugsaða eða yfirvofandi, (s.s. New York, 20. öldin, mannlegur veruleiki), oft byggt eða skynjað af fólki sem lifir einföldu lífi eða lostið er elding- um.“ Það má ætla, að höfundur setji þessa skilgreiningu fram í nokkurri alvöru, lesendum til skilningsauka. Samt hlýtur síðari liðurinn í henni, um hugarheim bókarinnar, að teljast lokleysa, því hvað á það að þýða, að „New York sé staður TMM 1995:4 125
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.