Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Blaðsíða 64
1954
— 62
á vinnuafli. Skuggahliðar þessarar vel-
sældar voru siversnandi afkoma út-
flutningsatvinnuveganna og órói á
vinnumarkaði, þó að ekki drægi til
átaka fyrr en eftir áramót, en kaup-
gjald hækkaði þó nokkuð i ýmsum at-
vinnugreinum, þ. á m. laun embættis-
manna um 3—10% eftir launaflokk-
um. Þrátt fyrir hina miklu þenslu i
efnahagskerfinu hélzt verðlag nokkuð
stöðugt á árinu. Meðalverðlagsvisitala
framfærslukostnaðar á árinu reyndist
158,6 stig, en var 156,9 árið áður.1)
Rvík.2) Afkoma almennings, eins og
árið áður, allgóð. Kaupgjald breyttist
lílið, en vöruverð fór smáhækkandi.
Atvinna var mikil í héraðinu. Skráðir
atvinnulausir aðeins 16, þar af 4 i
febrúar, 2 í maí og ágúst, en 8 í nóv-
ember. Flestir hinna skráðu voru
vörubifreiðarstjórar.
HafnarfJ. Afkoma almennings var
góð. Atvinna mikil allt árið, vertíðar-
afli í meðallagi, en sildveiði brást enn
þá einu sinni, og var þetta versta árið
af 10 i röð. Afkoma útgerðarinnar var
því ekki eins góð og hefði mátt vænta.
Akranes. Árferði allgott, bæði til
lands og sjávar. Mikil atvinna í kaup-
staðnum.
Kleppjárnsreykja. Afkoma almennt
sæmilega góð og batnandi vegna tals-
verðrar aukavinnu við framkvæmdir
stjórnarvalda og einstaklinga. Bændur
auka nú ört fjárstofn sinn og ræktun.
Ólafsvikur. Árferði var gott, og allir
bjargræðisvegir skiluðu góðum af-
rakstri. Afkoma má þvi hiklaust teljast
mjög góð og batnandi.
Búöardals. Afkoma yfirleitt góð á
árinu.
Reykhóla. Afkoma bænda í betra
lagi.
Flateyjar. Atvinna með mesta móti.
Um miðjan nóvember var þó atvinna
á enda og ekkert að gera fram til ára-
móta.
1) Aðallega samkvæmt Árbók Landsbankans
1954.
2) Ársskýrslur (yfirlitsskýrslur) hafa ekki
borizt úr eftirtöldum héruðum: Álafoss, Borg-
arnes, Stykkishólms, Patreksfj., Bíldudals,
Egilsstaða vestra og eystra, Eskifj., Stórólfs-
hvols, Hveragerðis og Laugarás.
Þingeyrar. Meðalafkoma til lands og
sjávar.
Flateyrar. Afli fremur rýr, en at-
vinna stöðug og góð vegna landana
togara og ýmissa framkvæmda.
Bolungarvíkur. Afkoma manna í
betra lagi og atvinna meiri og stöð-
ugri en áður.
ísafj. Afkoma betri þetta ár en önn-
ur undanfarin ár, og mun láta nærri,
að þetta ár hafi verið fimmtungi gjöf-
ulla en næsta ár á undan.
Súðavíkur. Heyfengur sæmilegur og
viðlika margt fé sett á vetur og áður.
Uppskera garðávaxta mun hafa verið
aðeins neðan við meðallag. Sjávarafli
var með bezta móti. Fyrir aldarfjórð-
ungi voru verstöðvar á Snæfjöllum,
Ögurnesi og í Súðavík. Nú er útgerð
aðeins í Súðavik. Einn 36 lesta bátur
var gerður út þaðan á vetrarvertið, en
nokkrir minni bátar, þiljaðir og opnir,
sóttu sjó fram eftir sumri. Allmargir
sjómenn fluttust suður á land á árinu.
Aflatregða fyrir Vestfjörðum veldur
því, að erfiðlega gengur að fá menn á
fiskibáta. Röskir menn og einhleypir
sætta sig ekki við 10—12 þúsund
króna hlut á vetrarvertíð, þegar þre-
falt hærri hlutur fæst syðra. Tvö
frystihús eru í Súðavík. Voru þau
starfrækt allt árið, en fengu of litið
liráefni til þess að rekstur þeirra bæri
sig vel. Þeir, sem eingöngu unnu í
frystihúsunum, auk litilfjörlegrar
aukavinnu, munu hafa haft um 16—18
þúsund króna árstekjur. En flestir eiga
nokkrar kindur, sem þeir heyja fyrir
og hirða um, auk garðholu. Sumir eiga
hænsni.
Árnes. Árferði óvenjuhagstætt, að
dómi kunnugra. Almenn afkoma eftir
vonum.
Hólmavíkur. Skepnuhöld góð, og
sauðfé bænda fjölgar. Þorsk- og síld-
arafli mjög rýr, eins og undanfarin ár,
og er því afkoma útvegs, sjómanna og
verkafólks í þorpum ærið bágborin.
Hvammstanga. Afkoma manna má
teljast allgóð. Búpeningshöld mjög
sæmileg. Næg atvinna yfir sumartím-
ann. Fiskilaust með öllu, utan lítils
háttar hrognkelsaveiði framan af vori.
Blönduós. Afkoma góð og bústofn
bænda nú orðinn allt að því eins mik-