Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Blaðsíða 94
1954
— 92 —
fátíðir hér, og mun þaS ekki að þakka
góðu siöferði, nema siSur sé. Heldur
mun þaS aS þakka góSu hreinlæti og
ströngu heilbrigSiseftirliti, einkum hjá
hernum, sem mun búa við strangan
aga á þessu sviði, og er það lofsvert.
Sárasótt sést ekki á árinu, en lekanda-
tilfelli koma fyrir öðru hverju.
2. Berklaveiki (tuberculosis).
1. Eftir mánaðaskrám:
Töflur V, VI, VIII, IX og XI.
1950 1951 1952 1953 1951
Tbc. pulm. 153 136 141 102 112
Tbc. al. loc. 32 29 45 37 24
Alls 185 165 186 139 136
Dánir 29 31 20 14 10
0— 7 ára
7—14 —
14—20 —
Yfir 20 —
2. Eftir berklabókum (sjúkl. í árs-
lok):
1950 1951 1952 1953 1954
Tbc. pulm. 841 810 853 836 752
Tbc. al. loc. 155 146 159 162 130
AIls 996 956 1012 998 882
Úr berkladauða dregur enn veru-
lega, og nemur hann nú aðeins 0,06%»
landsmanna. Nú bregður allt i einu
svo við, að enginn deyr úr heilaberkl-
um, og mun sliks langt að leita.
Skýrslur um berklapróf hafa borizt
ár öllum héruðum nema 7 (Flateyjar,
Patreksfj., Blönduóss, Dalvikur, Seyð-
isfj., Stóróifshvols og Selfoss, þar sem
engin berklapróf munu hafa verið
framkvæmd). Taka prófin til 17256
manns. Skiptist sá hópur þannig eftir
aldri og útkomu:
8 eða 1,7 %
966 — 6,6 —
205 — 11,8 —
119 — 27,6 —
461, þar af jákvæð
14622,-----------—
1742,-----------—
431,-----------—
Skýrsla berklayfirlæknis 1954.
Árið 1954 voru framkvæmdar
berklarannsóknir (aðallega röntgen-
rannsóknir) í 15 læknishéruðum. Voru
alls rannsakaðir 28345 manns, á 6
heilsuverndarstöðvum 26686, aðallega
úr 7 læknishéruðum (berklarannsókn-
ir í HafnarfirSi eru stöðugt fram-
kvæmdar af heilsuverndarstöðinni í
Reykjavík), en með ferðaröntgentækj-
um 1659 manns, aðallega úr 8 læknis-
héruðum. Fjöldi rannsókna er hins
vegar langtum meiri, þar eð margir
koma oftar en einu sinni til rann-
sóknar, einkum á stöðvarnar. Námu
þær alls 36354. Árangur rannsókna
heilsuverndastöðva er greindur sér-
slaklega (sbr. bls. 147—149). Af 1659,
sem rannsakaðir voru með litlum
ferðaröntgentækjum i 8 læknishéruð-
um, voru 6, eða 3,6%», taldir hafa virka
berklaveiki. ASeins einn þeirra, eða
0,6%», var áður óþekktur. Þessum
rannsóknum var yfirleitt hagað eins
og undanfarin ár. Aðallega voru rann-
sakaðir nemeudur og starfsfólk hér-
aðsskólanna, starfsfólk, sem fæst við
framleiðslu ýmiss konar matvæla, og
fólk samkvæmt vali héraðslækna.
Heildarrannsókn var þó gerð á Sauð-
árkróki. Tólc hún alls til 881 manns.
Hafði héraðslæknir áður gert berkla-
próf á öllum börnum kaupstaðarins.
ViS rannsóknina fannst 1 sjúklingur
meS virka berklaveiki, sem áður var
ókunnur. Eins og áður hefur Cai-
mettebóluefni verið sent til þeirra
héraðslækna, sem hafa óskað eftir að
framkvæma berklabólusetningu. Á
heilsuverndarstöðinni i Reykjavík
voru 467 manns berklabólusettir. Eins
og á síSast liðnum árum var samstarf
haft við berklarannsóknadeild Al-
þjóðaheilbrigSisstofnunarinnar, eink-
um um túberkúlínrannsóknir. Annað-
ist frú María Pétursdóttir, hjúkrunar-
kona, þessar rannsóknir. Þá greiddi
ofangreind stofnun ásamt berklavörn-
um rikisins alls kr. 91329,00 á árinu
til stofnunar þjóðskrárinnar, og var
það lokagreiðsla.
Hafnarfj. Nýsmitanir að minnsta
kosti 3 á árinu; eru það börn 4, 9 og
10 ára. 2 höfðu hilitis og eitt pleuritis