Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Blaðsíða 178
1954
— 176 —
sólarhring, þrátt fyrir ríflegar
pensilíngjafir. Við krufningu
fundust mikiar blæðingar í báð-
um nýrnahettum, sem höfðu eyði-
lagt kirtilvefinn í þeim báðum.
Enn fremur útbreiddar blæðingar
í búð og bjúgur í heila. Við smá-
sjárrannsókn fundust einstalca
Gram-^ kokkar i milti og mænu-
vökva, en ekkert óx, enda hafði
barnið fengið stóra skammta af
pensilíni. í hægri tonsillu fannst
við smásjárskoðun ígerð, um 3
mm i þvermál, full af segmenter-
uðum leukocytum. 1 ytra borði
ígerðarinnar sást bláæð, og er
hálfur veggur hennar eyðilagður,
þar sem leukocytarnir úr um-
hverfinu ráðast inn i hana. xílykt-
un: Sepsis meningococcica. Syn-
droma Waterhouse-Friderichsen.
24. 29. mai. 5 mánaða meybarn. Dó
skyndilega að nóttu til, án þess
að borið hefði á lasleika. Lá á
grúfu i vöggu sinni. Ályktun: Við
krufningu fannst mjólkurdrafli í
barka og barkakýli, og hafði hann
stíflað barka og berkjur. Virðist
barnið hafa kafnað af þvi, að
magainnihald hafi hrokkið ofan
í barka. Dálítil beinkramarmerki
á rifjum.
25. 10. júni Á. Á-son, 14 ára. Var að
keppa við annan pilt í sundlaug
í Reykjavík, og höfðu þeir synt
35 ferðir yfir laugina, er þeir
komu sér saman um að synda 3
ferðir i kafi á skriðsundi. Mun
þessi piltur hafa verið um það
bil að ljúka 3. ferðinni, er hann
lézt. Fannst likið á grúfu á lcafi
i lauginni 4 m frá bakkanum. Við
krufningu fundust stækkuð, fjólu-
blá lungu með óeðlilega stórum
alveoli á yfirborði, sem sums
staðar voru útþandir, eins og
blöðrur. 1 neðsta blaði hægra
lunga nokkur allt að því kríu-
eggsstór þykkildi, sem voru svart-
rauð á gegnskurði, en ekki sér-
lega þétt. Mikil froða i berkjum.
Thymus vó 45 g. Bæði nýru mjög
blóðrík, rauðsvört á gegnskurði.
Heilabörkur einkennilega gráblá-
leitur og heilavefurinn allur þrút-
inn af vatni, en hvergi blæðingar.
Heilinn vó 1805 g. Alyktun: Við
krufningu fundust greinileg ein-
kenni um drukknun, og önnur
einkenni, m. a. á heila, benda
greinilega til þess, að dauðinn
hafi stafað af köfnun. Útlit hægra
lunga bendir til þess, að pilturinn
bafi haft eftirstöðvar nýafstað-
innar lungnabólgu.
26. 14. júní. 4 mánaða sveinbarn.
Veiktist með hita og dó rúmum
sólarhring seinna, þrátt fyrir
pensilingjöf. Við krufningu fund-
ust blæðingar í báðum nýrna-
hetíum, svo að vefurinn var allur
gereyðilagður. 1 milti fundust
einstöku Gram-f- kokkar. í mænu-
vökvabotnfalli fannst mikið af
einkjarna frumum og einstöku
hrúgur af örlitlum Gram-f- stöf-
um, sem voru gildastir um miðju.
Ekkert fannst, sem líkist men-
ingokokkum. Við ræktun óx ekk-
ert úr blóði né mænuvökva. Á-
lyktun: Sjúkdómsmyndin bendir
til, að barnið hafi dáið úr blóð-
eitrun (sepsis), og stafar blóð-
eitrun með blæðingum í nýrna-
hettum langoftast af meningo-
kokkasepsis. Hér fundust ekki
með neinni vissu meningokokkar.
Frumurnar í mænuvökvanum
gætu bent til þess, að hér væri
um vírussýkingu að ræða, en ekki
tókst að finna neitt ákveðið vírus.
Ekki verður þó með vissu fullyrt
um dánarorsökina meira en það,
að rekja má hana til blæðinganna
í nýrnahettunum, en ekki er unnt
að segja, af hverju þær stafa, þótt
sjúkdómsmyndin bendi eindregið
til þess, að um næman sjúkdóm
hafi verið að ræða.
27. 16. júni. K. H-son, 37 ára. Hafði
lengi verið atvinnulaus vegna
drykkjuskapar, drakk aðallega
brennsluvínanda. Hafði ekki
bragðað áfengi undanfarnar 5
vikur, þangað til hann drakk sig
ölvaðan að kvöldi 13. júní. Kom
seint heim og fannst látinn á gólf-
inu um nóttina fyrir framan legu-
bekkinn, sem hann hafði sofnað
á. Ályktun: Við krufningu fannst