Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Blaðsíða 135
— 133 —
1954
kippti í tauminn. Náði hann sér
nokkurn veginn án aðgerðar. 2 menn
fengu skotsár við það, að skot sprakk
í byssu, annar á höfuðið, en hinn á
báðar hendur, og batnaði báðum vel.
8 ára telpa skar sig á gleri rétt ofan
við olnboga, og blæddi mikið. Var
bundið ofan við sárið, en ekki nógu
fast, svo að áfram blæddi, og er kom-
ið var með hana til læknis eftir tæp-
an klukkutíma (hún átti heima í
sveit), var hún svo útblædd, að gefa
varð henni blóð. Hresstist hún vel á
eftir. 3 börn brenndust, 1 af sjóðandi
vatni á thorax og handleggjum og
grær seint. Önnur kveikti i festi úr
einhverju gerfiefni, er hún hafði um
hálsinn, og brann talsvert á hálsi og
andliti. Greri sæmilega fljótt. 2 ára
drengur kveikti í fötum sinum, og
voru þau brunnin af honum upp undir
mitti, er að var komið. Brenndist hann
mjög mikið á leggjum og lærum, lend-
um neðan til, höndum og andliti.
Hefur hann legið lengi á sjúkrahús-
inu og gengur seint að gróa aftan á
leggjum, lærum og þjóum. Stuttu eftir
að hann kom á sjúkrahúsið, fékk hann
lika mislinga. Enginn lézt af slysför-
um á árinu.
Hofsós. Litið um slysfarir. 27 ára
maður lenti í vélsög og klauf þumal-
fingur vinstri handar. Sárið greri vel.
Ólafsfj. Allmörg slys, flest smávægi-
leg. Fract. claviculae 1, costae 1, lux.
antibrachii 1, patellae 1, humeri 1,
corpus alienum oesophagi 1, nasi 3
(steinn, tvisvar tala). Vulnera incisa
15, puncta 5, dilacerata 11. Contusio-
nes 26. Distorsiones 6. Combustiones 6
(heitt asfalt, einu sinni bráðið blý,
tvisvar púðursprenging). Abrasio cu-
tis 2.
Dalvíkur. 1 dauðaslys. Allmörg
minna háttar slys.
Akureyrar. 7. júní brann bærinn
Sandhólar í Eyjafirði, og brunnu þar
inni 3 börn frá 7—13 ára gömul, en
2 konur brenndust mikið, er þær
gerðu tilraunir til að bjarga börnun-
um. 2 menn, 20 og 24 ára, voru að
fara í vörubifreið frá Akureyri til
Reykjavikur, en mjög hvasst var og
sums staðar svell á veginum. Er að
svo nefndum Giljareitum kom, tók
vindhviða bílinn og kastaði honum út
af veginum niður i árgilið. Bifreiðin
fór þarna um 70—80 metra niður
snarbratt gilið og björg þau, sem
þarna voru, og mölbrotnaði, en báðir
mennirnir komust þó lífs af, mikið
siasaðir. Annar féklc fract. cranii et
maxillae, ásamt vulnera faciei variae
og contusiones variae, en komst þó
til næsta bæjar í ca. 7—8 km fjarlægð
og skýrði frá slysinu. Má kalla þetta
eindæma karlmennsku. Ég kom á
slysstaðinn nokkrum klukkutímum
eftir slysið, og gat hvorki ég né neinn
annar, er sá vegsummerki, skilið, með
hvaða hætti mennirnir höfðu komizt
lifandi frá þessu slysi. Hinn hlaut
fract. pelvis og contusiones variae. 57
ára maður var á gangi á hálu skips-
þilfari og rasaði með þeim afleiðing-
um, að hann fékk fract. cruris. 30 ára
maður var að kveikja í flugeldi, en
svo óheppilega vildi til, að flugeldur-
inn sprakk framan á kviði hans, og
kom þar djúpt brunasár, er ekki tókst
að græða fyrr en eftir 4 mánuði, og
þá eftir að húðtransplantation hafði
verið framkvæmd. 38 ára maður skaut
sig i mitt enni með kindabyssu. Við
röntgenrannsókn kom í ljós, að megin-
hluti byssukúlunnar sat fastur aftan
við miðjan heila. Maðurinn var með
nokkurri meðvitund, er ég kom til
hans, og var svo einnig næstu daga.
Fékk hann allmikla lömun öðrum
megin, en er þó sæmilega hress um
áramótin. 1 árs barn náði i glas með
salmíaksspíritus og drakk eitthvað
litið úr glasinu. Fékk strax á eftir
mikið oedema í munn og á varir.
Gefið pensilín í tvo daga, og var þá
barnið orðið heilbrigt. 9 ára barn var
að fara með hesta út í liaga, og einn
hestanna sló það, svo að það kjálka-
brotnaði. Önnur slys voru þessi helzt:
Fract. calcanei 2, ossis navicularis 2,
metatarsi 3, metacarpi 2, digiti 4,
malleoli 2, patellae 2, radii 16, humeri
9, cruris 8, antibrachii 5, fibulae 3,
femoris 2, colli femoris 2, costae 3,
scapulae et claviculae 1, cranii 2,
columnae 1. Lux. humeri 3. Ambustio
6, ruptura tendinis Achilli 2, menisci
genus 5, amputatio digiti 1, vulnera
ýmiss konar 32 og corpus alienum 15.