Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Blaðsíða 130
1954
— 128 —
konu, er varð barnshafandi, ca. 4
mánuSum eftir að hún fæddi á Lands-
spítalanum, en þangað var hún flutt
flugleiðis austan af Fjörðum vegna
praeeclampsia með mjög háan blóð-
þrýsting. Var hún talin i hættu þá.
Tók bráðlega að bera á eggjahvitu í
þvagi, og mælti ég með því, að gerður
væri abortus provocatus, en ekki þótti
ástæða til. Konan var síðar lögð hér
inn á sjúkrahúsið vegna praeeclamp-
sia og fæddi fyrir tímann lifandi barn.
Siðar í sængurlegunni fékk hún all-
mikla blæðingu. Þar sem hún var
mjög veikluö fyrir, varð að gefa henni
blóð, og fékk hún bata, en var lengi
að ná sér.
Hofsós. Fæðingar gengu yfirleitt vel.
Fylgjulos hjá 1 konunni, en olli ekki
verulegri blæðingu, og barnið fædd-
ist eðlilega.
Ólafsfj. Venjulega oftast aðeins um
deyfingu að ræða. Einu sinni var
barni snúið og það dregiö út. Hríðir
féllu alveg niður, hríöaraukandi lyf
höfðu engin áhrif, og var barnið mjög
hátt í grind. Tvisvar notuð töng, i
bæði skiptin hjá frumbyrjum. Hjá
hinni fyrri var um hriðarleysi að
ræða, og lyf voru óvirk. í siðara sinn-
ið voru grindarþrengsli orsökin, á-
samt framhöfuðstöðu og stórum burði.
Hafði ég visað stúlkunni til Siglu-
fjarðar, en læknir sá, sem skoðaði
hana þar, hélt, að fæðing mundi geta
gengið. Var þetta mjög erfið töng, og
hélt ég, að enda mundi með höfuð-
stungu. En sem betur fór, blessaðist
þetta eftir mikið erfiði. Barnið lifði,
en gat ekki kyngt neinu fyrstu sólar-
hringana, og tókst að bjarga þvi með
því að gefa þvi fæðu um slöngu.
Daluíkur. Smávegis aðgerðir við 3
barnsfæðingar.
Akureijrar. Allar meira háttar að-
gerðir í sambandi við barnsfæðingar,
svo sem tangartak og keisaraskurðir,
hafa verið framkvæmdar í Sjúkrahúsi
Akureyrar. Engin kona fékk verulega
barnsfararsótt á árinu, en nokkrar
konur munu hafa fengið smávegis
liitaslæðing eftir fæðingu, en hafa þá
strax fengiö pensilín eða súlfagjöf
með bráðum bata. Enginn abortus
provocatus á árinu, en 10 konur
misstu fóstur, að því er vitað er, og
voru allar fluttar á Sjúkrahús Akur-
eyrar vegna þessa. Mjög lítið er um,
að fólk komi til lækna til að fá leiö-
beiningar um takmörkun barneigna,
en þó munu það heldur fleiri nú
seinni árin, sem þetta gera, heldur en
áður var.
Grenivíkur. Fæðingar gengu allar
sæmilega vel. Meðalþyngd barna var
3850 g og lengd 54 sm. 1 fósturlát.
Orsakir ókunnar. Ekki hefur mín ver-
ið leitað vegna takmarkana á barn-
eignum.
Dreiðumýrar. Einu sinni var gerð
vending og framdráttur. Tvisvar losuð
fylgja með hendi. Önnur sú kona var
á afskekktum bæ og ekki hringt til
mín, fyrr en örvænt þótti um, að
fylgja kæmi á venjulegan hátt. Voru
liðnir nærri 4 tímar frá fæðingu, þeg-
ar ég kom á staðinn, en blæðing var
litil, auðvelt að ná fylgjunni, og allt
gekk vel að lokum. Aðrar fæðingar
voru tíöindalitlar. Var 8 sinnum vitjað
vegna fósturláta. 2 af konunum voru
frumbyrjur. 3 þeirra höfðu áður misst
fóstur, þar af ein tvívegis. Aldrei var
farið fram á abortus provocatus. Þessi
tala er óvenjulega og ömurlega há,
miðað við fjölda fæðinga í héraðinu.
Þau voru dreifð um alla hreppa þess
og alla tima árs, öll án þess að sér-
stakri áreynslu eða veikindum yrði
um kennt. Héraðslæknir álítur ekki,
að neins staðar hafi verið um abortus
criminalis að ræða.
Húsavíkur. 1 barn fæddist andvana.
Hreyfingar og fósturhljóð horfin viku
fyrir fæðingu (orsök ókunn). 1 barn
dó 7 daga gamalt, fætt 2 mánuðuni
fyrir tímann (debilitas neonatorum).
Annað barn dó 2 daga gamalt (mor-
bus cordis congenitus). Eðlileg fæð-
ing. 1 tvíburafæðing. Konan hafði
meðgöngueitrun og lá í tvo mánuði.
Fæðing þó eðlileg, en framdráttur á
seinna barni. Einu sinni lögð á töng
vegna sóttleysis. Fósturlát tið, 8, sem
komu í sjúkrahúsið til aðgerðar.
Iíópaskers. Fæðingar gengu allar
vel, og læknis var aðeins vitjað til
öryggis og til að deyfa. Ljósmæðui'
geta ekki fósturláta, og mér var ekki
kunnugt um þau á árinu.
t
J