Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Blaðsíða 147
— 145 —
1954
Flateyrar. Frá mínu sjónarmiði
mætti haga rekstri sjúkraskýla á þrjá
vegu: 1) LjósmæÖur (helzt með hjúkr-
unarkvennamenntun) verði ráðnar að
þessum sjúkraskýlum. Laun þeirra
hækkuð og umdæmin stækkuð. Að-
stoðarstúlka, sem ljósmóðirin þarfnað-
ist nauðsynlega, gæti svo tekið að sér
reksturinn, meðan Ijósmóðirin annað-
ist störf sin utan sjúkraskýlisins. 2)
Sjúkraskýli og gisting undir sama
þaki, rekið af sameiginlegu starfsfólki.
Hentar vel hér, því að á sumrin, þeg-
ar ferðafólk er flest, eru fæstir sjúk-
lingar. 3) Hvert hérað reki sjúkra-
skýli, fæðingarde'ild og ellideild, en
ekki stærri en það, að 2—3 starfs-
stúlkur gætu annazt rekstur þess.
ísafj. Sjúkrahúsið var rekið á sama
hátt og verið hefur, en aðsókn mun
hafa verið með mesta móti. Ilúsið
sjálft er nú vel útlitandi, en allir
gluggar í því eru orðnir ónýtir, og
stendur til að endurnýja þá.
Hvammstanga. Sjúkraskýlið starf-
rækt með sama hætti og fyrr.
Blönduós. Aðsókn að sjúkrahúsinu
var með minna móti, þvi að margt
sjúldinga úr Höfðakaupstað var sent
til Reykjavíkur, sem áður tiðkaðist að
hæmi hingað. Ekki dró það neitt úr
áhuga héraðsbúa um að koma hinum
nýja og veglega héraðsspítala áfram,
enda var unnið að innréttingu hans
°g útbúnaði allt árið.
Sauffárkróks. Eins og áður fór fram
fjöldi ambulant aðgerða á sjúkrahús-
inu, bæði í og án svæfingar og deyf-
ingar. Sjúkrahúsið var rekið með sama
hætti og áður, en alltaf verður nauð-
synin á nýju sjúkrahúsi brýnni.
Teikningu nýs sjúkrahúss er að verða
lokið, og ef fjárfestingarleyfi fæst, er
ráðgert að hefja byggingu sjúkrahúss-
tns á næsta sumri. Eins og áður nutu
allmargir sjúklingar ljóslækninga á
sjúkrahúsinu ambulant. Auk sjúklinga
sjúkrahússins og sjúklinga, sem koma
reglulega til eftirlits, voru skyggndir
a sjúkrahúsinu 26 sjúldingar og 33
röntgenmyndaðir. Loftbrjóstaðgerðir
(+ skyggning) voru gerðar 13 sinn-
um á 2 sjúklingum, og er það með
langminnsta móti.
Olafsfj. í haust fékk ég til afnota
þau 2 herbergi á neðri hæð hússins,
sem bæjarskrifstofurnar höfðu áður.
Er nú aðstaða fyrir lækni til að starfa
orðin mjög sæmileg. Annað herbergið,
sem áður var sjúkrastofa, 5x3 m að
stærð, tók ég fyrir viðtalsstofu. Skil-
rúm var tekið burtu, sem var milli
lyfjaklefa og herbergis, sem notað var
sem viðtalsstofa, og er þar nú komið
rúmgott herbergi fyrir lyfjabúðina.
Bakherbergi, sem áður var hjúkrunar-
konuherbergi, er nú lyfjageymsla.
Akureyrar. Fjórðungssjúkrahúsið á
Akureyri tók til starfa um áramótin
1953—54. 24. maí 1954 var kostnaður-
inn orðinn kr. 11277000,00, og var þó
þá ýmislegt eftir að kaupa af því, sem
nauðsynlegt er, þannig að telja má
öruggt, að þegar allt nauðsynlegt hef-
ur verið keypt, verði stofnkostnaður
yfir 12 milljónir króna. Stærð sjúkra-
liússins er 925 m2, 14000 m3. í húsinu
eru 242 herbergi og gangar, og eru þá
talin smáherbergi og útskot, þar af 38
sjúkraherbergi. Húsið er 3 hæðir,
kjallari og neðri kjallari undir nokkr-
um hluta þess. Á fyrstu hæð er lyf-
læknis- og röntgendeild, á miðhæð
handlæknisdeild og skurðstofur, og á
þriðju hæð er blönduð deild fyrir
bæði medicinska og kirurgiska sjúk-
linga, svo og fæðingardeild. Sjúkra-
deildir taka hver 33—38 sjúklinga, en
fæðingardeildin 8 konur. Stofurnar
eru flestar þriggja manna, en fáar eins
manns stofur. í kjallara er eldhús og
borðstofa starfsfólks, rannsóknarstofa,
2 móttökuherbergi lækna, miðstöð
fyrir hitunarkerfið, sem er rafmagns-
hitun og olíukynding til vara, einnig
eru þarna smíðaverkstæði o. fl. I
neðri kjallara eru geymslur og frysti-
herbergi. Húsbúnaður er svo til allur
nýr, sjúkrarúm frá Svíþjóð, en borð
og stólar og þess háttar siníðað hér á
Akureyri. Starfslið á árinu 1954 var:
4 læknar, 1 læknanemi, 10 hjúkrunar-
konur, 2 ljósmæður, 6 hjúkrunarnem-
ar, 17 starfsstúlkur á göngum, 1 stúlka
á röntgendeild, 1 stúlka á rannsóknar-
stofu, 1 nuddlæknir, sem vinnur hluta
úr deginum á sjúkrahúsinu, 1 ráðs-
kona, 5 eldastúlkur, 1 ráðsmaður og 3
karlmenn til ýmissa verka.
Húsavíkur. Sjúkrahúsið alltaf jafn-
19