Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1974, Page 52

Andvari - 01.01.1974, Page 52
50 ANDRÉS BJÖRNSSON ANDVAIU sé breitt bak, digur læri og digra kálfa og heyri mál mikið inn í stofuna og róm mikinn yfir málinu.“ Fáir, el’ nokkrir Islendingar bafa látið svo uppi tilfinningar sínar og skoð- anir sem Matdiías Jocbumsson hefur gert, ekki einasta í ljóðum sínum og fagur- fræðilegum verkum mörgum og miklum, beldur og í bréfum sínum og ævi- minningum. Auðvelt mætti ætla að lýsa þeim manni, - en flestar alhæfingar um manninn, stefnu hans og skoðanir eru dæmdar til að falla um sjálfar sig og missa marks fyrir hans eigin orðum eða efnisvali í einum eða öðrum stað. Því meir sem lesið er af ritsmíðum hans, þeim mun erfiðara er að leiða hann á bás eða marka honum stað, enda mundi honum sjálfum hafa verið slíkt ógeðfellt í mesta lagi. Sjaldan talar Matthías urn störf sín í stól eða fyrir altari, þótt hann hljóti að hafa verið ræðumaður góður. Hann vildi „trúa frjáls á guð hins góða“, og sálnahirðisstarfið var honum dýrmætt. Hann var mesta sálmaskáldið síðan Hall- grím leið. í ritstjórnartíð sinni hafði hann í gamni eftir þau ummæli, að í pólitík væri hann „allra vinur og engum trúr“. Hann var mannvinur. Flonum þótti hver svínahirðir goðum líkur. Hann kunni vel að meta stórbrotna menn og skörunga og orti eftir þá miklar og ágætar glymjandi drápur, en jafnfjálg kvæði orti liann eftir nafnlausa menn. Honum fannst meira til um fáein tár af barnsauga en allan beljanda í stærsta fossi landsins. Flann vildi stund- um mega skipta um skoðun og milda dóma sína, og hvað var eðlilegra? Kannski hafði hann látið eitthvað flakka, þegar sunnlenzkur sandstormur eða norðlenzk hafíshríð buldi á kaldri stofu, þar sem hann sat með handadofa eða kvalinn af kvefsótt. Þurfti hann þá að standa við öll sín orð, þegar sólin brauzt fram úr skýjarofi og vermdi bann, eða þegar hann hafði yljað sér í samræðum við vini sína? Flann lét aldrei ljós sitt undir mæliker. Ef líkingu má nota, þá voru flestir andans menn samtíðar hans eins og lokaðar skeljar á sjávarströnd, luktar fast utan um eina stefnu, eina ósk, eina perlu, ef til vill. Matthías var fullkomin andstæða þeirra, opinn fyrir öllum stefnum og straumum samtíðarinnar, öllum vindum, hvaðan sem þeir blésu, síleitandi, síveitandi af andlegri auðlegð sinni. Hann naut af alhug samskipta við aðra menn, faðmar þá í anda í bréfum sínurn. Hann var fleytifullur af þverstæðum, andstæðum, jafnvel ijarstæðum og svæsnum hugsunum, sem hann nefnir svo, í senn stoltur í mennelsku sinni og innilegri guðstrú og ofurauðmjúkur gagnvart þeim leyndardómum lífsins, sem enginn fær skilið. Hvers vegna varð Matthías Jochumsson þjóðskáld íslendinga? Hvers vegna varð lofsöngur hans þjóðsöngur Islendinga? Eg hygg, að fyrri spurningunni sé
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.