Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1974, Side 63

Andvari - 01.01.1974, Side 63
ANDVAHI STJÓRNARSKRÁ ÍSLANDS EITT IIUNDRAÐ ÁUA 61 þeirra og lög skyldi vera innlend,1 2) og cnginn nema þeir eiga með að dæma menn úr landi.-). Hversu frjálslega samn- ingurinn var gjörður af Islendinga hálfu, vottar bezt iþessi grein samningsins, sem er í öllu tilliti ágætlega samin og vottar jafn fagurlcga veglyndi eins og frelsistil- finning þjóðarinnar: „Halda viljum vér og vorir arfar allan trúnað við yður, með- an þér og yðrir arfar halda trúnað við oss.“ Síðan segir Jón Sigurðsson: „En taki menn rétt þá grundvallarreglu sambands- ins, scm í sáttmálanum liggur, og jafni henni við skoðunarmáta vorra tíma, þá er hún sú, að þar skal vera einn konung- ur, ein erfðalög konungsættarinnar, visst ákveðið gjald árlega til konungsborðs, en að öðru leyti innlend lög, nema hvað óákveðið cr, hvort jarlinn skuli vera norsk- ur eða íslenzkur." Þá ræðir Jón einveldi konungs og seg- ir: „En hvernig sem þessu er nú varið, þá hefir einveldi konunga i'erið eins full- komlega viðurkennt á Islandi eins og annarstaðar í ríkinu, og það er ekki til gangur vor að hrinda gildi þess, meðan það er viðurkennt. En eins víst er hitt, að Islcndingar hafa ekki hyllt Dani eða Þjóðverja, né neina aðra þjóð, til einveldis yfir sig, þó þeir hafi jafnframt Dönum og Norðmönnum hyllt einvalda konunga. Þar af leiðir aftur, að þegar konungur af- salar sér einveldið, þá höfum vér ástæðu til að vænta þess, að hann styrki oss til 1) Jón vitnar hér neðanmáls til þeirra ákvæða Gamla sáttmála, „að íslenzkir sé lögmenn og sýslumenn á landi voru“, og „að konungur láti oss ná vorum lögum og friði, eftir því sem lög- hðk vor (þ. e. Grágás) vottar." 2) Hér vitnar Jón enn í Gamla sáttmála: „Utan- stefnur skulu af leggjast utan þær, sem dæmdar verða af vorum mönnum á alþingi." að halda að minnsta kosti þeim réttind- um, sem helguð cru með hinum forna sáttmála, þegar land vort sameinaðist Noregi; það er sá grundvöllur, sem vér eigum að byggja á og laga samkvæmt þörfum þessara tíma, og það er því hcld- ur ætlanda, að konungur veiti oss styrk til þess, sem íslendingar hafa einmitt ját- að einveldinu í því skyni, að þeir treystu því til að sýna landinu öfluga vcrnd í að njóta sinna fornu réttinda, eins og þegar var sýnt.“ Næst skýrir Jón hugmyndir sínar um stjórnarfyrirkomulagið: „Það er því nauð- syn að auka réttindi alþingis, á sama hátt og í Danmörku verður gjört, og setja land- stjórnarráð á Islandi, sem standi fyrir allri stjórn þar á aðra hliðina, en á hinn bóg- inn leiti um öll stórmæli úrskurðar kon- ungs. Til að standa fyrir slíkum málum Iiér þarf íslenzkan mann, sem hafi skrif- stofu undir sér, og gegnum hana ætti öll íslenzk mál að ganga til konungs eða annarra. Ef menn vildi haga þessu svo, að í stjórnarráðinu væri ávallt fjórir: einn landstjóri eða jarl og þrír meðstjómendur, en einn af þessum þremur væri til skipt- is í Kaupmannahöfn sem forstöðumaður hinnar íslenzku skrifstofu, sýnist sem það mætti allvel fara. Stjómarráðherrarnir og jarlinn ætti þá að bera fram fyrir alþing erindi af konungs hendi og taka við þjóð- legum crindum þingsins aftur á móti. Þeir ætti og að geta gefið allar þær skýrslur, sem þingið hefði rétt á að hcimta af stjórnarinnar hendi, og yfirhöfuð að tala hafa ábyrgð stjórnarinnar á hendi fyrir þjóðinni." Fyrirheit konungs, sem áður var drcpið á, um ákvarðanir um stöðu Islands, er að finna í konungsbréfi til stiftamtmannsins á íslandi frá 23. septembcr 1848. Þar seg- ir: „Þá er það þó ekki tilgangur vor, að aðalákvarðanir þær, sem þurfa kynni til
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.