Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1974, Side 69

Andvari - 01.01.1974, Side 69
ANDVARI STJÓRNARSKRÁ ÍSLANDS EITT HUNDRAÐ ÁRA 67 þá átt má bera upp bæði á reglulegu A1- þingi og auka-alþingi. Nái uppástungan samþykki beggja þingdeildanna, skal leysa Alþing upp og stofna til almennra kosninga að nýju. Samþykki hið nýkosna þing ályktunina óbreytta og nái hún staðfestingu konungs, þá hefur hún gildi sem stjórnarlög. Stjórnarskráin skyldi öðlast gildi fyrsta dag ágústmánaðar 1874. 1 sambandi við stjórnarskrána var gef- in út auglýsing konungs 14. febrúar 1874, þar sem gerð er nokkur grein fyrir stjórn- arskránni. Segir þar, að konungur vilji gjöra yfirstandandi ár ennþá atkvæðis- meira fyrir Islendinga með því að gefa Islandi stjórnarbót, er veiti alþingi fullt löggjafarvald og fjárforræði og sem að öðru leyti sé svo frjálsleg sem framast sé unnt. „Jafnframt og Vér birtum þetta Vorum trúu og kæru þegnum á íslandi, finnum vér hvöt til þess að lýsa yfir allra- hæstu ánægju Vorri með, að hið íslenzka stjórnarskipunarverk, sem svo lengi hefir verið starfað að, þannig er nú alveg til lykta leitt, og sömuleiðis viðurkenning Vorri og þakklæti fyrir traust það, sem fulltrúar landsins hafa auðsýnt Oss, með því að fela það fyrirhyggju Vorri á þann hátt, sem sagt var, að koma fullnaðarskip- un á um þetta mikilvæga málefni." Enn segir í auglýsingunni: „Það er von Vor, að Vorir trúu íslendingar taki á móti gjöf þeirri, sem Vér þannig af frjálsu fullveldi höfum veitt íslandi, með hinu sama hug- arfari, er hún er sprottin af.“ Tekið er fram, að litið sé á stjórnarskrána sem „endileg stjórnskipunarlög" og að með henni sé veitt svo mikið frelsi og þjóðleg réttindi, að skilyrðum fyrir öflugum og heillaríkum framförum landsins, bæði í andlegum og líkamlegum efnum, sé með því fullnægt. Kristján konungur níundi heimsótti Is- land á þjóðhátíðinni 1874 fyrstur konunga. Meðan hátíðin stóð yfir og heimsókn konungs, fannst mönnum sjálfsagt að fagna honum og hátíðinni og því, sem gott væri í stjómarskránni. Jón Sigurðs- son, sem var búsettur í Danmörku, kom ekki á þjóðhátíðina. Hann ritaði í And- vara, tímarit Þjóðvinafélagsins, rækilega greinargerð um stjórnarskrána, en hann lét ritið ekki koma til lands fyrr en síðla sumars að þjóðhátíð lokinni. I grein hans eru raktir kostir og gallar stjórnarskrár- innar. Þótt hann telji ýmislegt til bóta frá fyrra ástandi, gagnrýnir hann harð- lega mörg ákvæði hennar. Skulu nú rak- in meginatriðin í gagnrýni þeirri, er Jón Sigurðsson og ýmsir aðrir höfðu uppi. 1. Þó að það loforð hafi verið gefið aftur og aftur, að stjórnarskrá fyrir Island skyldi ekki verða lögleidd án samþykkis Alþingis, þá hefði stjórnin fengið konung til að valdbjóða stjórnarskrána, að sínu leyti eins og hún hefði fengið konung og ríkisþingið danska til að valdbjóða stöðulögin 1871. I stjórnarskránni væru ýmis atriði, sem Alþingi hefði aldrei séð og því ekki fengið að njóta við síns ráð- gjafaratkvæðis. Onnur atriði væru þar, sem Alþingi hefði stungið upp á að breyta eða hafa öðruvísi, og hin þriðju atriði, sem Alþingi hefði beint rnælt á móti. 2. Um samband Islands og Danmerkur og meðferð hinna sameiginlegu mála var byggt á stöðulögunum frá 1871, og í fyrstu grein stjórnarskrárinnar eru þau lög sér- staklega nefnd. Nú hafði því verið mót- mælt harðlega af hálfu Alþingis, að þau lög væru bindandi fyrir Island. Stöðu- lögin byggðu einnig á því, að grundvall- arlög Dana frá 1849 væru gild á Islandi, en þetta var meðal meginatriða í mótmæl- um íslendinga fyrr og síðar. Stöðulögin voru sem fleinn í holdi Islendinga. Það var því viðkvæmt mál, sem hlaut að valda
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.