Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1974, Síða 81

Andvari - 01.01.1974, Síða 81
ANDVARÍ Hndurskoðun stjórnarskráu 79 kjörinn forseta eigi aSeins þjóðkjörinn vciraforseti að leysa af hólmi. Beri að kjósa hann samtímis og með sarna hætti og for- setann. Varðandi annað atriðið, hvort okkur muni henta að hafa valdamikinn forseta, sem iþá sennilega væri hugsaður sem stjórnmálaforingi jafnframt og e. t. v. einnig forsætisráðherra hverju sinni, er ég þcirrar skoðunar, að slíkt mundi miður heppilegt í okkar fámenna þjóðfélagi. Með Iþeirri skipan forsetaembættisins gæti tæpast hjá því farið, að forsetinn stæði jafnan í eldlínu stjórnmálalegra átaka. Með núverandi fyrirkomulagi er hins vegar til þess ætlazt, að forsetinn sé yfir pólitískar deilur hafinn - að um hann og embætti hans sé friðaður reitur og for- setinn iþannig gerður að sameiningartákni pjóðarinnar. Að því að eiga slíkan friðaðan reit, held ég, að okkar sundurlyndu og deilu- gjörnu þjóð veiti ekki, og sé því núver- andi skipan forsetaembættisins heppileg og vafasamt, að breytt yrði til bóta í því efni. Annars er forseti íslands ekki svo valda- laus sem haft er við orð, og kemur það iðulega í ljós í sambandi við stjómar- myndanir. Um það, h\’ort Alþingi Islendinga eigi að starfa í tveimur deildum, svo sem ver- ið hefur síðan það var endurreist, eða hvort það skuli starfa í einni málstofu, eru vafalaust nokkuð skiptar skoðanir. En víst er um það, að forsendur þær, sem upphaflega voru fyrir tveggja deilda kerf- inu, eru fyrir löngu brottu fallnar. Þá hafa nokkrar nágrannaþjóðir okkar nú þegar breytt -þingum sínum á þann veg, að lþ ær starfa nú í einni málstofu, og er ekki annað vitað en það hafi vel gefizt og breytingin sé talin í takt við tímann. En víst er mér Jjóst, að með þessu og móti má færa margvísleg rök, þó að hér vcrði ckki gert að sinni. Þetta er þó atriði, sem taka þarf af- stöðu til sem fyrst, þó að ekki væri af öðru en því, að lítt er hægt að vinna að undirbúningi nýs Alþingishúss, fyrr en fullráðið er, hvort þingið á að starfa í einni málstofu eða tveimur. í stjórnarskrárnefnd virðist mér líklegt, að stuðningur við eina málstofu verði ofaná. Ekki er hugmyndin um eina málstofu heldur nein dægurfluga, því að í ritgerð sinni um stjórnarskrána segir Jón Sig- urðsson meðal annars: „ ... einkanlega ímyndum vér oss, að nytsemin af tvískipt- ing þingsins muni þykja nokkuð vafa- söm, iþegar fram líða stundir, einkum með svo fámcnnu þingi.“ Eins og að var vikið hér að framan, hafa ákvæði laganna um Landsdóm, sem byggð eru á ákvæðum stjórnarskrár, aldrei komið til framkvæmda, og hafa þau því alla tíð verið dauður bókstafur. Má því líklegt telja, að það verði ekki deiluefni að fella ákvæðin um Landsdóm burt úr stjórnarskránni. Hallast ég helzt að þeirri skoðun, að fela beri Hæstarétti hlutverk hans. Varla verður annað sagt en ákvæði stjórnarskrárinnar varðandi trúfrelsi lands- manna séu næsta frjálsleg, en þó heyrast um það raddir, að ákvæðin um, að hin evangelisk-lútherska kirkja skuli vera þjóðkirkja á íslandi, beri að nema brott úr stjórnarskránni, því að fyrr en svo sé gert, sé hér ekki um algert trúfrelsi að ræða. Er ekki ástæða til að fjölyrða um það atriði, en það má upplýsa, að lítinn hljórn- grunn hefur það hlotið í stjórnarskrár- ncfnd að fella það ákvæði niður. Varðandi þjóðaratkvæðagreiðslur er það að segja, að flestir virðast. telja stefnt
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.