Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1974, Page 142

Andvari - 01.01.1974, Page 142
140 ÓLAFUR BJÖRNSSON ANDVARI stakra atvinnugreina á iþessu tímabili. Sá atvinnuvegurinn, sem fyrir þyngst- um búsifjum varð af völdum heimskrepp- unnar, var sjávarútvegurinn. Eins og áð- ur er getið, urðu Islendingar að láta helming togaraflota síns, eða 10 af 20 skipurn, af hendi við Bandamcnn árið 1917. Var þá hafizt handa um endur- nýjun hans og aukningu þegar eftir það að heimsstyrjöldinni lauk, þannig að þeg- ar árið 1920 voru togararnir orðnir 28 og 47 árið 1925, og náði tala þeirra þá há- marki á þessu tímabili. Aðalframleiðslu- varan var, eins og verið hafði síðan um aldamót, saltfiskur, sem seldur var til SuðurJEvrópu, cinkum Spánar. Á þriðja áratugnum voru 10-15% þorskaflans flutt út scm ísvarinn fiskur, nær cingöngu til Bretlands. Eftir að heimskreppan skall á, dró rnjög úr saltfisksútflutningi til Suður-Evrópu- landa vegna takmarkana á innflutningi, sem gripið var til í þessum löndum. Llrn þverbak keyrði hins vegar, hvað saltfisk- markaðinn snerti, þegar borgarastyrjöldin brauzt út á Spáni, en þá lokaðist með öllu sá markaður, sem liafði verið að- almarkaðurinn fyrir íslenzkan saltfisk. A árabilinu 1930-35 lækkaði verðmæti út- flutts saltfisks úr 36,2 millj. kr. í 20,8 millj., og 1938 var það komið niður í 17,2 millj. kr. eða aðeins 48% verðmæt- isins áður en kreppan hófst. Þessu olli bæði verðfall og innflutningstakmarkan- ir í markaðslöndunum, en hér við bættist, að aflabrögð fóru mjög rýrnandi livað þorskveiðar snerti eftir miðjan fjórða ára- tuginn. Nokkuð dró líka úr sjósókn vcgna slæmrar afkomu útvegsins. Þeirri miklu minnkun útflutnings- tekna, scm leiddi af hinum stórfcllda samdrætti saltfisksútflutningsins, var reynt að mæta mcð eflingu annarra verk- unaraðferða og annarra veiða en þorsk- veiða. Lögð var nú mciri áherzla en áð- ur á útflutning frystra fiskafurða, eink- um ísfisks, en vísir myndaðist einnig til hraðfrystiiðnaðar síðustu árin fyrir seinni heimsstyrjöldina, þótt í smáum stíl væri, þannig að útflutningur hraðfrystra af- urða nam aðeins 2,8% hcildarverðmætis útflutnings 1938. Mest áherzla var þó lögð á það á ár- unum fyrir stríðið að cfla síldveiðar og síldariðnað. Hafði ríkið forgöngu um byggingu þriggja stærri síldarvcrksmiðja á árunum 1930-1940, tveggja á Siglu- firði og einnar á Raufarhöfn, en nokkr- ar smærri verksmiðjur voru annaðhvort byggðar eða keyptar af útlcndingum á vegum einkaaðila og bæjarfélaga. Hlut- dcild síldarafurða í heildarvcrðmæti út- fluttra sjávarafurða óx þannig úr u. þ. b. 10%, sem hún nam kringum 1930, í u. þ. b. þriðjung síðustu árin fyrir stríð, þótt sveiflur yrðu á þessunr hlutfölliun frá ári til árs vegna misjafnra aflabragða. I hcild var fjárhagsafkoma útvegsins þó mjög bágborin á kreppuárunum, þannig að flestar greinar fiskveiðanna voru rckn- ar með tapi á þessum árurn. Leiddi það bæði til minni sjósóknar og rýrnunar fiskiskipastólsins, einkum togaraflotans. Togarar voru sem áður getur orðnir 47 talsins árið 1925, en voru aðeins 37 árið 1939. Það vó þó á móti þessu, að mótor- báturn fjölgaði vcgna aukinnar áherzlu á síldveiðar. Undir lok þessa tímabils var stjórn- völdum Ijóst, að gagngcrðar ráðstafanir til þcss að koma í veg fvrir áframhald- andi taprekstur útvegsins og samdrátt i fiskveiðum urðu ekki umflúnar. í apríl 1939 var því ákveðið að lækka gengi ís- lenzku krónunnar um 18%, sem samsvar- aði 22% verðhækkun crlends gjaldcyris. Stcrlingspund hækkaði þannig úr kr. 22.15, sem það hafði kostað síðan 1925,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.