Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Side 70

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Side 70
70 HVERNIG RÆTT IST SPÁ IN? Þjálfun aðgreiningar (Discrimination training) Í Direct Instruction eru atriði sem nemendur rugla saman hljóðrænt eða sjónrænt vel aðgreind í kennslunni og ekki kynnt samtímis. Dæmi úr lestrarkennslunni hér gætu verið b og p eða vegur og veggur. Vinnuvenjur margra sem beita saman beinum fyrir- mælum og hnitmiðaðri færniþjálfun (DI–PT) eins og í Morningside skólanum (Johnson og Street, 2004), byggjast hins vegar á námsefnishönnun Susan Markle (Markle, 1990) að því leyti að lík atriði eru kynnt samtímis fyrir nemandanum. Var sú leið farin hér. Þegar fleiri en einn kostur eru lagðir fyrir nemandann í senn, t.d. bókstafirnir u, n, og m, og rétta svarið felst í einum þeirra, er samkvæmt aðgreiningu Markle talað um rétta svarið sem dæmi og hin svörin sem ekki eru rétt í samhenginu sem dæmaleysur. Að þekkja dæmið eitt sér er mun auðveldara en að greina það frá öðrum og jafnvel líkum dæmaleysum. Samkvæmt aðferð Markle er nemandinn þjálf- aður í að greina dæmi frá dæmaleysum á merkjanlegan hátt eins og með því að sjá og segja, heyra og segja, heyra og benda eða sjá og benda. Til að fyrirbyggja vandamál á seinni stigum í náminu leggja þeir sem beita Markle-aðferðinni áherslu á að aðgrein- ingin sé þjálfuð áður en nemandanum er gert að beita áunninni færni sinni við samsett viðfangsefni af sama toga. Hnitmiðuð færniþjálfun með mælingum (Precision Teaching; PT) Í samfelldum verkefnum daglegs lífs þarf hegðun að geta flætt snurðulaust frá einni athöfn í aðra, svo sem þegar lesið er, leikið á hljóðfæri, unnið á tölvu eða þegar fólk talar erlend tungumál, svo dæmi séu tekin. Kennarar sem kenna og þjálfa með bein- um fyrirmælum og hnitmiðaðari færniþjálfun æfa upp slíkt athafnaflæði. Eftir kenn- arastýrða frumkennslu með beinum fyrirmælum losa þeir um DI-tauminn í þeim atriðum námsefnisins sem nemandinn hefur þá ótvírætt á valdi sínu. Nemandinn fær tækifæri til að spretta úr spori og æfa leiknina áfram þangað til hann hefur hina nýju kunnáttu á hraðbergi. Í hnitmiðaðri færniþjálfun fela fyrirmæli kennarans hvorki í sér skömmtun á efninu, eins og reiknaðu niður síðuna, lestu kaflann eða skrifaðu tíu línur, né aðrar kerfislægar hömlur sem halda aftur af afköstum nemandans (Binder, 2003). Nemandinn er með öðrum orðum ekki háður fyrirmælum eða dæmum kenn- arans við hverja athöfn sína, en vinnur frjálst og óheft innan þess tímaramma sem gefinn er til æfingarinnar (free operant) (Lindsley, 1992). Á þennan hátt æfir nemandinn lykilatriði efnisins sem frumkennt var, í stefnumiðuðum, tímamældum æfingasprett- um sem oft eru ein mínúta í senn. Eftir hvern sprett er mælt hvað nemandinn lauk miklu og hversu mikið hann bætti sig. Rétt svör og röng, svo sem rétt lesin atkvæði og rangt lesin eru talin hvor í sínu lagi. Námsafköstin eru mæld í tíðni sem sýnir fjölda svara á tímaeiningu. Sú tíðni er skráð jafnóðum á staðlað hröðunarkort (Standard Celeration Chart). Hröðunarkortið sýnir breytingarnar sem væntanlega verða á tíðn- inni við kennsluna sem afkastaaukningu (ac-celeration) eða hröðun. Kortið er stýritæki kennarans. Með því getur hann greint tölulega og myndrænt hver staða nemandans er hverju sinni, framfarir hans og afkastaaukningu í rauntíma. Hröðunarkortið gerir kennaranum kleift að sjá jafnóðum breytingar sem verða á námsframvindunni, taka
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.