Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Side 164

Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Side 164
164 HÁSKÓLAST IG IÐ Í L JÓS I HNATTVÆÐINGAR frelsi, hreyfanleika nemenda og starfsfólks, jöfnum tækifærum og lýðræði og fleiri þáttum. Einn liður í þróun hins samevrópska háskólasvæðis er yfirlýsing um að há- skólamenntun skuli gegna lykilhlutverki í að minnka ójöfnuð í samfélaginu. Einnig koma þar fram væntingar um að nemendur sem hefja, taka þátt í og ljúka háskólanámi endurspegli fjölbreytileika samfélaganna. Loks hefur verið bent á að gott aðgengi að háskólum sé ekki nægilegt, heldur verði háskólarnir að geta komið til móts við ólíkar þarfir þeirra sem þar stunda nám. Áhersla á hlutverk háskóla í því að draga úr sam- félagslegum ójöfnuði kom m.a. skýrt fram á ráðherrafundi um Bologna-ferlið í maí 2007 (London Communiqué, 2007). Ef gengið er út frá því að eitt af meginhlutverkum háskóla sé að draga úr sam- félagslegum ójöfnuði, bæði hvað varðar aðgengi að þeim og innra starf, er næsta skref að huga að því hvaða leiðir séu færar og á hvaða hugmyndafræðilegum grunni eigi að byggja slíkt háskólastarf. Hugmyndafræði fjölmenningarlegrar menntunar hefur þró- ast sem andsvar við samfélagslegum ójöfnuði og felur m.a. í sér viðleitni til að koma í veg fyrir jaðarstöðu minnihlutahópa og virkja alla nemendur til þátttöku. Parekh (2006), sem fjallað hefur um þróun fjölmenningarlegra samfélaga og rætt æskilega pólitíska formgerð þeirra, nefnir að eitt af skilyrðum þess að jafnvægi, stöðugleiki, samheldni og virkni náist í fjölmenningarsamfélagi sé fjölmenningarleg menntun á öllum skólastigum. Hann leggur ríka áherslu á að virkja þurfi einstaklinga fjölmenn- ingarsamfélaga og að móta þurfi nýja sameiginlega sjálfsmynd samfélaganna sem allir þegnar þeirra eigi aðild að. Mótun slíkrar sjálfsmyndar fer ekki síst fram í menntakerf- inu að sögn Parekh. Fjölmenningarleg menntun Töluvert hefur verið skrifað um fjölmenningarlega menntun undanfarna áratugi. Hafa þar fjölmargir fræðimenn lagt hönd á plóg, en hér er sérstök athygli vakin á skrifum tveggja fræðimanna, Banks og Nieto. Banks (2005) leggur áherslu á að fjölmenningarleg menntun sé a.m.k. þrennt; hugmynd eða hugtak, umbótahreyfing í menntun og ferli. Fjölmenningarleg menntun felur, að mati Banks, í sér þá hugmynd að allir nemendur – óháð kyni þeirra, stétt, menningu og uppruna – eigi að hafa jöfn tækifæri til menntunar. Banks bendir einnig í þessu samhengi á þá staðreynd að sumir hópar nemenda búi við betri aðstæður til náms í skólum en aðrir, sem t.d. hafa önnur menningarleg einkenni. Algengt sé að skólastarf sé miðað við þarfir meirihlutahóps eða -hópa samfélagsins. Sé reynsla, menning og saga annarra menningar-, tungumála- eða trúarhópa hunsuð hafi það neikvæð áhrif á alla nemendur, viðhaldi mismunun og komi í veg fyrir að þekking, sjónarhorn og viðmið annarra hópa séu virt og viðurkennd. En huga þarf að fleiri þáttum. Nieto (1999) bendir á að skortur á væntingum til nemenda af erlendum uppruna í hverju samfélagi sé í raun stærsta hindrunin á vegi þeirra til velgengni. Gildi þess að hafa trú á getu nemenda og að gera kröfur til þeirra er því mikilvægt í þessu samhengi. Hún tekur einnig fram að eitt sé að vera umburð- arlyndur og koma til móts við ólíkar þarfir nemenda en annað að gera ekki þær kröfur til allra nemenda að þeir geri sitt allra besta.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.