Hugur - 01.06.2011, Page 24

Hugur - 01.06.2011, Page 24
22 Kristian Guttesen rœðir við Sigríði Þorgeirsdóttur stríðsrekstri og vopnaframleiðslu með einhverjum hætti. Þetta er ein ástæðan fyrir því að ég er nú að hefja nýtt rannsóknarverkefni ásamt samstarfshópi um heim- speki ofbeldis, átaka og stríðs, en augljóslega leika kynjabreytur þar hlutverk. A pessu ári ritstýrðir pú greinasafni með pýðingum á textum Hönnuh Arendt um kreppu stjórnmála og leiðir til að vinna sig tít tír henni.3 Hvernig snertir heimspeki hennar við kreppu islenskra stjórnmála? Kreppa íslenskra stjórnmála er óaðskiljanlegur hluti af kreppu stjórnmála í heim- inum við þær aðstæður sem ég lýsti áðan. Peningakerfið sem við búum við er ósjálfbært og það stefnir í þrot ef elckert er að gert. Pólitíkin hefur á undanförnum áratugum verið keypt upp af fjármálaöflum. En hrun hinnar svokölluðu nýfrjáls- hyggju, eða /«zhvz-fyire-kapítalismans, hefur fært okkur heim sanninn um það að pólitíkin þarf að herða regluveldi um ijármálaheiminn og leita leiða til að gera peningakerfið sjálfbært. Það er hætta á að pólitísk forsjárhyggja aukist á ný. Pólitíkin er í stöðugri hættu á að snúast of mikið á sveif með frelsi eða of mikið á sveif með forsjárhyggju. Hannah Arendt var þeirrar skoðunar að pólitík væri veruleiki sem fælist í hagsmuna- og valdabaráttu. Hún var líka mjög meðvituð um að pólitískt vald spillir. Arendt taldi að pólitískur vettvangur væri ónýtur. Fjár- magnsöflin eiga fjölmiðla og geta stýrt umræðu á opinberum vettvangi. Borgarar voru að hennar dómi smættaðir í það að vera neytendur og launþegar (e.job-hold- ers) sem græfi undan því að þeir væru virkir borgarar. Hún átti sér þess vegna þann draum að skapast gæti opinber vettvangur þar sem borgarar ræddu málefni samfélagsins því til heilla. Arendt var þeirrar skoðunar að heimspekin hafi lengst af vanrækt ást til heimsins sem er umhyggja fyrir samfélaginu. Sumir binda vonir við að 21. öldin verði öld almennings, að beint lýðræði vaxi og dafni og að opinber vettvangur verði til þar sem eru líflegar umræður og margbreytilegar raddir fái notið sín. Leiðtogar í gömlum skilningi sem foringjar, sem vísi leið í krafti valds, heyri sögunni til. Arendt skilgreindi einmitt raunverulegt vald sem samtakamátt borgara til að hrinda góðum málum í framkvæmd. Vald leiðtoga aftur á móti er ævinlega að láni fengið og heldur einungis velli svo lengi sem borgarar gefa samþykki sitt fyrir því. Borgarar þurfa að hafa hugrekki til að koma fram á hið opinbera svið, en það felur í sér áhættu, það gæti mistekist. Ætli borgaralegt hug- rekki sé ekki bara sú dygð sem mest eftirspurn ætti að vera eftir nú um stundir. Þtí minntist áðan á heimspeki ofbeldis og ofbeldi i heimspeki. Geturpú útskýrt nánar tengs/inpar á milli og hvaðpú hafðir íhuga? Ofbeldi á það til að taka við þegar við getum ekki rætt og útkljáð mál. Ofbeldi getur verið með ýmsu móti, allt frá beinni árás til æpandi þagnar og útilokunar. Það sem einkennir það, aftur á móti, er það að standa fast á eigin skoðun og vilja ekld gefa eftir til að kúga aðra. Heimspeki hefur þess vegna ævinlega hampað 3 Hannah Arcndt, Af ást til heitnsins: Utn kreppu stjórnmála, heitnspeki, alrœdi og il/sku. Reykjavík: Háskólaútgáfan, 2011.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.