Hugur - 01.06.2011, Blaðsíða 37
HuGUR | 23. ÁR, 2011 | S. 35-44
Björn Þorsteinsson
Náttúran, raunin og veran
Af reglum og vélum í ljósi „Hugleiðinga við Öskju“
eftir Pál Skúlason
I grein þessari verður tekist á við nokkrar spurningar sem kenna má við verufræði
eða frumspeki náttúrunnar. Hvað er náttúran? Og hvað er maðurinn, hver er staða
hans í náttúrunni og hvers er hann umkominn andspænis henni? I viðureigninni
við þessi snúnu og sígildu viðfangsefni verður leitað fanga hjá hugsuðum á borð
við Hegel, Lacan og Slavoj Zizek, en íyrst og fremst verður þó notið fylgilags
við einn valinkunnan texta úr íslenskri heimspeldsögu síðustu áratuga - greinina
„Hugleiðingar við Öskju“ eftir Pál Skúlason, sem kom fyrst út í greinasafninu
I skjóli heimspekinnar (1995) og var síðan gefin út á sérstakri bók tíu árum síð-
ar, ríkulega myndskreytt og á fjórum tungumálum - íslensku, ensku, frönsku og
þýsku.1 Skoðað verður hvaða verufrœði Páll bregður upp í umræddum texta, og
þær hugmyndir sem þannig koma úr kafinu verða raktar í ýmsar áttir, eða jafnvel
niður í ómælisdjúpin.
* * *
I „Hugleiðingum við Oskju“ tekur hugsun Páls Skúlasonar á sig sérlega áleitna
mynd. Eins og titillinn ber með sér hefur greinin að geyma tilteknar hugleiðingar
sem kviknuðu þegar Páll átti leið um Öskju einhvern tímann snemma á tíunda
áratug síðustu aldar. Þetta var fyrsta reynsla Páls af því náttúrufyrirbæri sem Askja
er. Skemmst er frá því að segja að þessi reynsla varð afar djúptæk, og Páll bíður
eklú boðanna að draga lesandann með sér á vit þeirra vitsmunalegu ævintýra sem
þar um ræðir. Strax í upphafi textans varpar hann fram tveimur spurningum sem
hann segir hafa vaknað í huga sínum meðan hann dvaldi í Öskju. Fyrri spurningin
er svona: „Hvernig verður heild til og hvers konar heildir eru til?“ Sú síðari hljóðar
1 Páll Skúlason 1995; Páll Skúlason 2005. Vísað verður til greinarinnar með blaðsíðutölum í sviga,
og þá til upphaflegrar útgáfu hennar í I skjóli heimspekinnar.