Hugur - 01.06.2011, Síða 54
52
Eyja Margrét Brynjarsdóttir
Náttúra um náttúru
Þegar litið er til peninganna liggur svarið nokkuð beint við: Peningar eru í eðli
sínu skapaðir af samfélaginu og gildi þeirra er viðhaldið af samfélaginu. Þannig
hvílir þetta gildi á mannlegri hegðun og afstöðu og sjálfsagt er að skoða þessa
hegðun og afstöðu til að komast að einhverju um það. Með öðrum orðum er þetta
gildi sem við viljum geta dregið ályktanir um rígbundið því sem er skoðað emp-
írískt í þessu tilfelli. Auðvitað má hugsa sér að einhver kynni að andmæla þessu
með því að neita því að gildi peninga sé háð mannlegu samkomulagi og halda því
í staðinn fram að tilvist peninga, eða í það minnsta gildi þeirra, sé einhvern veginn
sjálfstætt og óháð. Það sýnist mér hins vegar fremur langsótt afstaða og sjálfsagt
að gera ráð fyrir að gildi peninga sé haldið uppi af okkur og hugsunum okkar.
Með öðrum orðum má segja að svo lengi sem gengið er út frá því að mannleg
hegðun og afstaða gegni lykilhlutverki í því að skapa peninga og viðhalda gildi
þeirra þá hlýtur að vera sjálfsagt að h'ta til rannsókna á þessum sömu hlutum
þegar skoða á gildi peninga og eðli þeirra.
Hvað varðar annars stigs eiginleikana, þessa skynrænu, er málið líklega eitthvað
flóknara, en kannski ekki svo. Eg nefndi það áðan að þeir væru á einhvern hátt
háðir skynjunum okkar eða starfsemi skynfæranna. Það var hins vegar ekki alveg
á hreinu með hvaða hætti það samband væri. Það virðist þó vera nánast gefið
að þær ályktanir sem við drögum um eðli skynrænna eiginleika séu bundnar af
því hvernig skynjunin er í raun og veru. Þannig voru samsemdarkenningunni
um eðli lita, þeirri kenningu að litir væru það sama og ljósendurvarp tiltekinnar
bylgulengdar, verulegar skorður settar með þeirri uppgötvun að það sem mann-
eskjan skynjar sem einn og sama litinn getur verið samsetning af endurvarpi ljóss
með hinum ýmsu bylgjulengdum. Það var ekki hægt að halda því fram að litur
væri í eðli sínu eitthvað sem væri á skjön við það hvernig manneskjan skynjar liti í
rauninni. Rauður litur er, eiginlega samkvæmt skilgreiningu, það sem við almennt
skynjum sem rauðan lit og ómögulegt er að gera eðli hans að einhverju sem er
óháð þessari skynjun okkar. Stephen Yablo lýsir þessu vel í greininni „Singling
out Properties":
Munum eftir þversögninni: til að vita hvað hið gula er þarf að vita hvern-
ig það lætur gula hluti líta út. En ef hið gula er hlutlægt ættu áhrif þess
á mannlega skynjendur ekki að koma því við hvað það er. Hið mótsagn-
arkennda svar er að það geti verið fullkomlega hlutlægir eiginleikar sem
eru þannig að til að vita hvað þeir eru sé nauðsynlegt að skilja þá á hug-
lægan máta. Ég lít svo á að meðal þessara eiginleika megi finna, auk lit-
anna, upplifunareiginleika eins og að finna til kláða eða finna til sársauka,
skyneiginleika eins og að vera svona í laginu og boðandi eiginleika eins
og skynsemi og gæsku.13
Erfiðast er að réttlæta notkun reynslugagna þegar kemur að fyrsta stigs eigin-
13 Yablo 1995: 271.