Hugur - 01.06.2011, Qupperneq 161
HuGUR | 23. ÁR, 2011
Frá stjórn Félags áhugamanna um heimspeki
Á aðalfundi FÁH, sem haldinn var 4. desember 2010, var ný stjórn kosin, svo sem
frá er greint í pistli fráfarandi formanns í síðasta Hug. Björn Þorsteinsson lét þá af
störfum eftir að hafa gegnt formennsku í tvö ár og setið í stjórn í ijögur ár. Eru honum
á þessum tímamótum þakkir færðar íyrir ötult starf hans til þessa í þágu félagsins og
framgangs heimspekinnar á Islandi.
Á sama aðalfundi var rætt um þá tillögu stjórnar að bjóða upp á svokallaðan opinn
aðgang að eldri heftum Hugar á netinu. Varð að lokum samþykkt að „að gera tímarit
félagsins, Hug, almennt aðgengilegt á vefnum; að eldri árgangar Hugarverði í opnum
aðgangi og að nýrri rit verði gerð aðgengileg eftir því sem hagkvæmt telst miðað við
núverandi áskriftar- og lausasölu". Tæpu ári eftir þessa samþykkt er enn þó nokkuð í
land með að úr rætist vegna lagalegra álitamála sem upp hafa komið í þessari vinnu
og samningaviðræðum við hugsanlega samstarfsaðila. Hvað Hug varðar að öðru leyti
má geta þess að mestallan lager tímaritsins má nú aftur nálgast hjá Háskólaútgáfunni
að Dunhaga. Einnig er hægt að hafa samband við undirritaðan til þess að kaupa eldri
eintök en af sumum árgöngum eru afar fá eintök eftir.
Félagið stóð fyrir nokkrum viðburðum á starfsárinu. Um miðjan desember 2010
var haldin kynning og upplestur úr heimspekiritum sem komið höfðu út sama ár og
þótti ástæða til þess að gera slíkt að árlegum viðburði, a.m.k. svo fremi sem verk með
heimspekilegu ívafi halda áfram að koma reglulega út.Tveir erlendir fýrirlesarar héldu
framsögu á vegum FÁH: Marcus Steinweg, sem kennt hefur heimspeki í Berlín og
víðar, ræddi í janúar 2011 um „ákvörðunarhyggju Adornos“, þó svo fýrirlesturinn hafi
raunar fjallað um margt fleira en það. I septemberbyrjun hélt svo ísraelski stærðfræði-
prófessorinn Ron Aharoni erindið „Ráðgáta nefnd heimspeki" sem beindist að undir-
stöðum fagsins, er honum þóttu byggja á vissum huglægum ruglingi. Voru báðir við-
burðirnir skipulagðir í samvinnu við Heimspekistofnun sem er hér með þakkað fýrir
samstarfið.
Akveðið var að halda upp á 300 ára afmæli skoska heimspekingsins Davids Hume
með kaffisamsæti á afmælisdag hans, 7. maí, þar sem til máls tóku Gunnar Harðarson,
Njáll Björgvinsson og Henry Alexander Henrysson. Þegar þessi orð eru skrifuð er
ædunin að halda síðar í haust ögn stærra málþing um Hume í tengslum við afmæli
hans sem og annað um Maurice Merleau-Ponty, sem hefur annars verið heldur lítið
íjallað um á Islandi. Svo er því að sjá sem Hugur og FÁH dafni nokkuð vel og njód
þannig ávaxtanna af óeigingjörnu starfi fýrri stjórna við að laga íjárhagsstöðu félags-
ms.
28. október 2011,
Egill Arnarson,formaður FÁH