Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1956, Page 86

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1956, Page 86
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR víst vorar kynferðir sannar. Svo og þeim mönnum, er vilja vita forn fræði eða rekja ættartölur, að taka heldur að upphafi til en höggvast í mitt mál, enda eru svo allar vitrar þjóðir að vita vilja upphaf sinna landsbyggða ...“ III Áður en lengra sé haldið, er rétt að athuga við hverja sé átt með orðunum útlendum mönnum. Prófessor Jón Jóhannesson hefur rætt þetta í íslendinga sögu sinni, sem út kom fyrir skömmu, og farast honum orð á þessa leið: „Ekki er heldur víst, við hvaða útlenda menn er átt, en varla er átt við Norð- menn, því að íslendingar kölluðu þá ógjarna útlendinga, og naumast heldur Svía eða Dani. Líklega er átt við einhverja hinna fornkristnu þjóða, Eng- lendinga eða Frakka, en í þeirra augum voru ekki aðeins íslendingar, heldur allir norrænir menn á víkingaöld illmenni, og kunnugt var, að þeir höfðu margt þræla.“ Sú fullyrðing Jóns Jóhannessonar, að íslendingar hafi ógjarn- an kallað Norðmenn útlendinga, er á engum rökum reist, enda hefur orðið iítlendur frá fornu fari verið notað í andstæðri merkingu við orðið innlend- ur, eins og augljóst er af þjóðveldislögum vorum og öðrum fornum ritum. Danir, Norðmenn og Svíar hafa því ávallt verið kallaðir útlendir menn á íslandi. Auðvelt væri að rökstyðja þetta með mörgum dæmum, ef þess yrði þörf, en hér verður eitt látið nægja. í Vígslóða er kafli um útlendra manna víg, og hefst hann á þessa leið: „Ef útlendir menn verða vegnir hér á landi, danskir eða sænskir eða norrænir, þá eigu frændur hans sök, ef þeir eru hér á landi, um þau þrjú konungsveldi, er vor tunga er. En vígsakar um víg útlendra manna af öllum löndum öðrum en af þeim tungum, er eg talda nú, þá á hér engi maður að sækja þá sök af frændsemis sökum nema faðir og sonur ...“ Eins og sést af þessum kafla, er orðið útlendur notað um Norðurlandabúa ekki síður en aðrar erlendar þjóðir. Orðið norrœnn er hér — eins og annars staðar í fornum ritum íslenzkum — notað í merkingunni norskur. Hins vegar er í kaflanum notað orðtakið vor tunga til að sérkenna þær þjóðir, sem töl- uðu sama tungumál og íslendingar. Þetta minnir á setningu í arfaþætti Grá- gásar: „Ef hér andast útlendur maður af danskri tungu ...“ En eins og kunnugt er, þá kölluðu íslendingar móðurmál sitt oft danska tungu á fyrstu öldum landsbyggðar. Engum heimildum vorum er betur treystandi um réttar merkingar orða en hinum fornu lögum, enda er ekkert í íslenzkum ritum, sem bendir til þess, að 180
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.