Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1956, Síða 109

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1956, Síða 109
FÆREYSKAR BÓKMENNTIR hún er laus við allt alþýðlegt — þegar frá eru talin nokkur ástarkvæði og ættjarðarsöngvar sem hafa til að bera fegurð sem öllum er auð- skilin. Djurhuus er hreinræktaður sér- hyggjumaður og rómantískur fegurð- ardýrkandi, og hann veit það og finnst heiður að því. Fegurðin í öll- um sínum myndum, en þó fyrst og fremst í fornum skáldskap (því Djur- huus var lærður maður með skóla- menntun í fornmálunum) var fyrir honum aðalatriðið í tilverunni, frikkadellur daglega lífsins, búðar- lokur og fólkþingsmenn að mestu hlægilegir hlutir, jafnvel þó þeir væru nauðsynlegt böl, sem átti að af- rækja og berjast gegn með rýting háðsins, en það var íþrótt sem Djur- huus var leikinn í. Listin vegna list- arinnar var hugsjón sem þessi hágáf- aði færeyski Don Ouixote barðist fyrir af fullkomnum heiðarleik og ekki án persónulegra fórna, og það á óskáldlegum tímum mangara og skólameistara. Djurhuus hafði mjög þroskaða formgáfu og brageyra. Hann var ekki aðeins snilldarlegur þýðandi íHeine, Poe, Keller, Goethe, Dante, Platon og öll Ilionskviða, svo nokkur dæmi séu nefnd), heldur er hann meðal þeirra öfundsverðu Ijóðskálda sem geta látið lítið kvæði opnast eins og blóm eða titra eins og streng eða stálfjöð- ur, og hann getur með töfrum orða og hrynjandi sagt það sem er ósegj- anlegt, túlkað á söngrænan hátt. Gildi hans fyrir færeysku þjóðina liggur að öðrum þræði í því að hann hefur sýnt hve ágætlega hið fábrotna en mjúka tungumál Færeyinga hæfir ljóðrænum skáldskap, og hinum að hann hefur opnað færeyskar dyr inn í sígildan skáldskap, ef svo má kveða að orði. Aðdáunarverð eru hin íburðar- miklu kvæði Djurhuus „Atlantis“ og „Mósis á Sínaífjalli“. Hið síðar- nefnda er, með biblíulegar sýnir og hljómsveitarlega uppbyggingu, í hreinum barokstíl. Aðrir eru hrifnari af þeim ljóðum hans sem minna á innilega kammertónlist. Afstaða Djurhuus gagnvart þjóð sinni er að sumu leyti lík Nólsoyar Páls, hann er — sérstaklega í fyrstu æskukvæðum sínum — hæðinn og æstur. Hann hefur ekki heldur já- kvæða afstöðu til lífsins. Mestur hluti kvæða hans mótast af beiskri efa- girni og ósamþýðleik með tilverunni, sum vitna um seigan mótþróa og gneistandi fyrirlitningu á broddborg- urum og smásálum, en önnur um þunglyndislega uppgjöf: Fyri okkum lysir eingin lukkusól, tí sorgstroyddar mær nomir lögðu leiðir, har tungur ivi miðleyst vóð sum strá i stormi yvir oydnar heiðir. (Okkur lýsir engin lukkusól, því sorgum stráðar okkur nornir lögðu leiðir, þar þung- 203
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.