Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Síða 23

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Síða 23
fis í vígbúnaðarstormi, „skynlaust, marklaust leikfang allra átta“ (285,288). Og sem bóndi viðurkennir Stephan fuslega að hann eigi allt sitt undir duttlungum sólar og regns (221). En „forlögin“ í skilningi Stephans eru einvörðungu þær kringumstæður sem lífið býr einstaklingnum—ekki myrk örlög eða orsakanauð — og það er undir honum sjálfum komið hvernig hann vinnur úr þeim. Forlögin eru byrjunarreiturinn; taflið er okkar. Verð- um við þar heimaskítsmát er engu(m) um að kenna nema okkur sjálfum. Það var „sjálfskaparvíti“ Stephans að hann varð ekki ríkur (XX) og væri kona Kolbeins þess er kvaðst á við kölska vargefin hafði hún sjálf steypt sér í þann voða með því að taka hann fram yfir fjármanninn á Fjósum sem einnig stóð henni til boða (71-72). Nú á tímum hálmstráa og tylliástæðna er hollt að hlýða á þennan boðskap Stephans: órefjusemi hans og undanbragðaleysi. Fortíðin, forlögin, lífskjörin firra einstaklinginn ekki ábyrgð heldur storka honum til dáða: Þar býð ég þér dauða, ef sekkurðu í sjá, en sigur og höpp ef þú flýtur (39). Þessi ríka ábyrgðarhugsun Stephans tengist beint einstaklingshyggju hans sem Nordal leggur réttilega áherslu á og á köflum jaðrar við sérlyndis- eða sérviskutrú. í kvæðunum valsa Uppsala-Gíslar og Fjalla-Bensar um vettvang og brjóta björg: Sigurður Trölli, Jón Hrak, Kolbeinn. Það eru hinir stór- brotnu, stórskornu sem „leysa / lífshöft ill og þrautir grynna“ (60), á meðan „fjöldamergð“ hinna löku meðalmanna (XFV) „deyr að loknu verki“ (258). Vart getur ódíalektískari hugsun, né bágrækari í fjöldaflokki, þó að Sverri Kristjánssyni yfirsjáist það í fyrrnefndri ritgerð sinni. Ekki er ófyrirsynju að ætla að dálæti Stephans á merg í orðavali, fáséðum samböndum og hraunkarlalegum nýgervingum, eigi sér sömu rökrót, þ.e.a.s. einstaklingshyggjuna: Öll nýsköpun í heiminum sé verk hinna fáu sérstæðu afburðamanna er „reisa / rönd við guðum feðra sinna“ (60). Því sé sundurleiini, jafnt í skaphöfn sem orðavali, til góðs „enda þótt það, sem ólíkt er, sé ekki til hins betra og jafnvel þótt það virðist stundum vera til hins verra“,7 svo að vitnað sé í annan 19. aldar hugsuð, John Stuart Mill, en andlegur skyldleiki hans og Stephans er næsta ótrúlegur á stundum. Við sjáum sérleik — sumir myndu segja fordild — Stephans í orðafari í töluvert öðru ljósi en ella ef við lítum ekki á hann sem dæmi um skrúfstykkjaskáld- skap og rímbarsmíð heldur sem vitandi tjáningu þeirrar sannfæringar að efni og form verði ekki sundurgreint: að mál tamið í þjónustu frjórrar og sérstæðrar hugsunar verði sjálft frjótt og sérstætt. Glöggvast þá lykillinn að hugsun þessa jarðbundna bónda og hversdagsmanns, sá að hversdagsgarmar TMM 1995:4 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.