Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 27

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Page 27
geðfelldara „ljósþrengslum“ barnaskapar eða vesaldóms, „ef myrkrið er einungis rúmt“ (135). Lækurinn er ágætur út af fyrir sig, alfær og tær, en hann ann þó ánni meir því að hún á fleiri raddir (120). Við búum í heimi þar sem stundum er nauðsynlegt að byrsta sig, brjóta feyskna flóðgarða með afli vorleysingar, reka illt út með illu. Og þá er betra að vera fljót en lækur, betra að óvinurinn viti að maður geti „slegið stærra“, jafnvel þótt maður af drenglund dragi sem mest úr högginu (191). Ef við viðurkennum ekki þessi sannindi, um nauðsyn þess að grípa til óyndisúrræða þegar í harðbakkann slær, vöðum við, að dómi Stephans, í hinni siðferðilegu höfuðvillu sem er sú að kasta mannshamnum og halda að við séum eitthvað annað en við erum. IV. Þroski, sæla Það er þeim mun minni ástæða til að fjalla hér rækilega um höfuðstefið í lífsspeki Stephans G. sem því hafa verið gerð ítarlegri skil áður, af Nordal og öðrum sem um hann hafa ritað. Þetta stef, sem öll önnur hugðarefni hans skipast í hvirfing um, er þroskinn. „Líf er þroski. . . / Framförin er lífsins sanna sæla“ (197). Við eigum stöðugt að klífa tindinn á eigin þroskafjalli, ekki að hlaupa í hæsta haft í fyrstu atrennu heldur kóklast hægt og sígandi „upp á við“ — „hrasa“ þangað og „falla“ (309) ef ekki vill betur til — og ætla okkur á hverjum degi, eftir því sem kraffurinn vex, „ögn örðugri og jafnlengri ferð“ (114). Árangur þess einstaklings eða þeirrar þjóðar er á endanum mestur sem gerir best af smæstum efnum (124); hann er hlutfallið milli efniviðar og úrvinnslu. Grímur frá Hrafnistu, sem lærði að nota seglið, er að sama skapi ffemri Fulton þeim er byggði fyrsta gufuskipið sem forsendur hans til afreka voru minni (62).12 „Hvass skilningur“ bókvitsins er ekki heldur hið eina þroskamerki; það er ekki síður „hög hönd“ verksvitsins og „gott hjarta" siðvitsins sem rækta ber hjá sjálfum okkur og öðrum (222). Ég hef dásamað þessa mjög svo aristótelísku þroskahugsjón að klígju- mörkum í fyrri skrifum og ætla ekki að íþyngja lesandanum hér með meiri lofsöng.13 Ein forsenda hennar er hluthyggja — objektívismi — um mann- legt eðli: sama „þrá og hugartök“ (316) endurspeglist í augum ólíkra ein- staklinga í ólíkum samfélögum þótt aldir skilji, „augunum af líku bergi brotnu" (198). En það að manneðlið breytist ekki og þar takist sífellt á öfl ljóss og myrkurs þýðir ekki að öll samfélagsleg framför sé tálsýn. Þvert á móti. Við vitum til dæmis „að skorturinn spanar upp eðlið vort illt, / en auðurinn ræktar vort besta“ (65). Með bættum efnahagslegum aðstæðum og dreifingu þekkingar, því að „menningin út á við eykst“ (324), eygir skáldið í fjarska „umbætta og glaðari framtíð“ (215). Við þurfum ekki að kynbæta mann- TMM 1995:4 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.