Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 112

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Side 112
ingi. Hún er frelsandi afl í samfélagi þar sem „allt getur gerst“. Hinni efnislegu, hedónísku uppfyllingu óskanna er aldrei teflt gegn neinu siðferði- legu gildismati heldur er hún þvert á móti gerð hluti af stærri og umfangs- meiri „opnun“ samfélagsins. Djöflaeyjan verður að frásögn af frelsi. Þessi frelsis- og uppgripatími er einnig umgjörð nýjustu skáldsögu Einars, Kvikasilfurs. Þetta er fyrst og ffemst saga af „athöfnum“. Athöfnum sem eru órjúfanlegur hluti af þjóðfélagi möguleikanna og uppgripanna þar sem ákvarðanir eru ekki teknar með hliðsjón af áætlunum heldur vegna óvæntra sviptivinda og duttlunga. Þær eru táknmynd þess tíma þegar bláfátækir alþýðumenn, líkt og Bárður Killian, ein höfuðpersóna bókarinnar, geta komist í feitt ef þeir eru nógu útsjónarsamir. En þessar athafnir eru þegar upp er staðið allt annað en frelsandi. Þær leiða í besta falli ekki til neins en oftar leiða þær þó til ógæfu, brjálæðis og enn meiri fátæktar. í stað þess að vera tákn um frelsi eru þær sífellt spyrtar saman við æði, geðveiki og vímu. Ýkjurnar í frásögninni vísa ekki á hina grótesku gerjun lífsins í fátækrahverf- um Reykjavíkur, líkt og í Djöflaeyjunni, þær vísa fyrst og fremst á æðið: „nú fór Bárður að taka til hendinni, með meiri starfsorku en nokkru sinni fyrr, hann vann sextán til átján tíma á sólarhring alla daga vikunnar, og dreymdi um peningamál þann stutta tíma sem hann svaf á nóttunni" (bls. 36). I fyrri hluta skáldsagnatvennunnar um Killiansfjölslcylduna Heimskra manna ráð (1992) gerði Einar tilraun til að skýra athafnaæðið út frá söguleg- um og félagslegum þáttum, líkt og Guðmundur Andri Thorsson gerði í skáldsögunni íslenski draumurinn (1991), þar sem „æðið“ var rakið til „tilbúins“ draumveruleika stjórnmála og efnahags. Þessar skýringartilraunir eru ekki jafn fyrirferðarmikill þáttur í Kvikasilfri en engu að síður er ljóst að líkt og í Heimskra manna ráðum er Einar hér að gagnrýna þetta æði, þessa sviptivinda uppgripanna. Hann teflir fram mótvægi við þessa loftkenndu vitleysu sem er hinn jarðbundni sögumaður Halldór Killian og frásögn hans. Að vísu lifir þessi sögumaður á sagnatilbúningi athafnanna og æðisins en hann er engu að síður fulltrúi nýrrar skynsemi sem reynir að festa rætur í þeim stöðugleika sem rís af kollsteypu athafnamannanna. Á grundvelli þessarar nýju skynsemi er hægt að vega og meta fortíðina og gera upp reikninga við tímabil uppgripanna. Tímar uppgripanna eru liðnir og það eina sem þeir áorkuðu var vitleysa, glundroði og geggjun. Stöðugleikinn sem leysir þá af hólmi er á hinn bóginn tími upplýsingar og íhugunar þar sem viðhorf og verk eftirstríðsárakynslóðarinnar eru vegin og metin og blindgöt- ur hennar gagnrýndar. Hann er hið ódrukkna ástand athafnafíklanna. En þó svo að stöðugleikinn sé útgangspunktur gagnrýninnar, þá er ekki verið að segja söguna af honum í Kvikasilfri heldur af uppgripum og athöfn- um sem mistakast. Þegar þessari hrakfallasögu lýkur er hið frásagnarverða 110 TMM 1995:4
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.