Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Síða 125

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1995, Síða 125
 ingu var hún líka alvöru glíma við hinar klassísku spurningar um verðmætamat, heiðarlegt líferni og syndsamlegt. Að sumu leyti heldur Ólafur upp- teknum hætti í nýjustu bók sinni, Snigla- veislunni (1994), þótt hvorki sé umræðan jafn marghliða né fjölbreyti- leg og í Fyrirgeíhingu syndanna. Það ræðst ekki síst af eðli Sniglaveislunnar sem er nóvella eða löng smásaga og hef- ur öll einkenni þeirrar bókmennta- greinar. Hún er stutt, hnitast að mestu í kringum afhjúpandi fund tveggja manna sem varpar nýju ljósi á líf þeirra. Byggingin er einföld og haglega gerð, framvindan hæg framan af en með ísmeygilegum athugasemdum og vísun- um reynir höfundur að byggja upp spennu í kringum þær grunsemdir sem kveiktar eru strax í upphafi um að ekki sé allt sem sýnist í lífi þessara manna. Uppistaða sögunnar er veisla þar sem örlagafundur mannanna tveggja verður og þar eru bornir fram sniglar af ýmsu tagi sem sagan dregur nafn sitt af. Snigl- ar eru jafhffamt mikilvægt tákn í sög- unni; lýsingin á því hvernig þeir flýja inn í sjálfa sig og „leggjast síðan á meltuna, sljóir af áti“ (9) skírskotar til þeirrar lífsafstöðu sem sagan deilir á og hæðir. Þessi flótti manna frá óþægilegum veruleika inn í sjálfsmíðaðan heim þar sem sérhver maður getur skapað sinn eigin sannleika, hina dægilegu blekk- ingu, er einkenni á annarri aðalpersónu sögunnar, Gils Thordersen heildsala. Gils er afskaplega ógeðfelldur maður, ofláti, fram úr hófi hégómlegur, fullur af karlagrobbi, ekki síst um kvenhylli og kynsælni, aukþess sem hann er málsvari ansi hæpinnar og lítt samúðarfullrar heimspeki. Þótt persóna hans og látæði, t.d. allt umstangið í kringum sniglaveisl- una, rambi á mörkum öfga og sé létt gróteskt, þá er Gils samt trúverðugur á sinn hátt og persóna hans hangir saman. Hins vegar má halda því ffam að helsti veikleiki sögunnar sé einmitt Gils; hann er algerlega einvíð persóna, eins og stundum er í smásögum, og allir hans drættir koma strax ffam. Hann hvorki leynir á sér né býr persónuleiki hans yfir öðrum víddum en þeim sem birtast í orðum hans og athöfnum. Fall hans er því fyrirsegjanlegt og reyndar lesanda kærkomið, því þusið í honum verður afskaplega þreytandi til lengdar. Bæði eru sjónarmið hans lítt sympatísk og allt tal hans um praktuga vellyst, sérríteg- undir og snigla, verður heldur leiði- gjarnt til lengdar. Hið óumflýjanlega uppgjör er þess vegna dregið óþarflega á langinn. Þetta er ekki síst bagalegt vegna þess að sagan hvflir nær alfarið á eintóna persónulýsingu Gils. Hin meginpersóna sögunnar, Örn, er hins vegar algjör andstæða Gils, upp- burðarlítill og vammlaus kennari sem virðist bláeygur og saklaus úr hófi fram. Að vísu reynist hann leyna svolítið á sér, auk þess sem persónulýsing hans er ekki alveg laus við íróníu af hálfu höfundar. Það er augljóst að höfundur stillir upp þessum sterku andstæðum vitandi vits, í þeim tilgangi að draga fram persónu- einkenni hvors um sig og sýna hvernig þeir standa fyrir gjörólíkar lífsstefnur. Auðmýkt og makalaust lítillæti Arnar dregur fram og ýkir oflæti og falskt öryggi Gils. Öfgar andstæðnanna gera það að verkum að sagan verður á köflum næsta farsakennd. Satt best að segja minnir Örn ekkert lítið á vissar persónur úr sögum Ólafs Jóhanns Sigurðssonar og ég fæ ekki bet- ur séð en að með Sniglaveislunni sé Ólaf- ur Jóhann Ólafsson með vissum hætti að skrifast á við föður sinn. Að minnsta kosti er gaman að bera þá feðga svolítið saman, enda kemur þá ýmislegt á dag- inn. Líkindi Arnar við Pál Jónsson blaðamann í öOu hátterni og orðum eru TMM 1995:4 123
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.