Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Page 168

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Page 168
1954 166 — skólahús er til, og er skólinn á slik- um hrakhólum með húsnæði, að oftast er ekki kennt nema einu sinni á sama stað og því alltaf verið að skipta um húsnæði. Er starf skólanefndarfor- manns ekki öfundsvert, er hann verð- ur að ganga fyrir hvers manns dyr til að betla um húsnæði handa skól- anum. Og þó nú að stofan fáist, sem stundum er örvænt um, er hún oftast svo litil, að vart er kennsluhæft i henni. Upphitun oftast af skornum skammti og leiga rándýr. Slíkt fyrir- komulag í skólamálum, sem hér hefur verið rætt um, getur eigi staðið til lengdar, enda hafa hvað eftir annað komið fram raddir um, að tveir eða fleiri hreppar sameinuðust um bygg- ingu heimavistarskóla. Telja margir með fræðslumálastjóra, að skóli sá ætti að risa að Sælingsdalslaug, þar sem heitt vatn er. Er þó sá staður að flestu öðru leyti óheppilegur. Auðvit- að hníga öll rök að því, að hrepp- arnir sameinist um heimavistarskóla, hvort sem úr verður eða ekki. Flateyjar. Sett vatnssalerni og hand- laug i barnaskólann. Annars allt við sama. ísafj. Skólaeftirliti var háttað eins og undanfarin ár. Gagnger endurbót fór fram á barnaskólahúsinu hér á ísafirði, og er það nú sem nýtt að innan, bjart og vistlegt og vel við hæfi staðarins enn um sinn. Nýtt skólahús var tekið í notkun í Hnífs- dal á árinu, þótt ekki væri það form- lega gert fyrr en á þessu ári. Er þetta hið myndarlegasta hús og mun vafa- laust fullnægja þörfum Hnífsdælinga um langa tima. Hólmavíkur. Byrjað var á byggingu lieimavistarskóla að Klúku í Bjarnar- firði og var lokið við kjallarann fyrir haustið. Braggi sá, sem hefur verið notaður til skólahalds, er orðinn alls óviðunandi. Hvammstanga. Alþýðuskólinn að Reykjum í Hrútafirði starfaði ekki. Hafði skólanum hnignað og nemend- um fækkað jafnt og þétt síðan 1950, og nú er svo komið, að ekki þótti fært að halda skólastarfinu áfram. Skólastjóri fluttist alfarinn til Reykja- víkur með fjölskyldu sína, en hús skólans standa auð. Samkvæmt tillögu fræðslumálastjóra mun í ráði að verja allríflegri fjárhæð á næsta ári til end- urbóta og lagfæringar á húsum og hitalögn. Síðan hefur hann lagt til, að þar verði framvegis barnaskóli, heima- vistarskóli, fyrir sýsluna alla. Ólafsfj. Leikfimissalur var hljóð- einangraður. Hitaveitan hefur alltaf reynzt ónóg fyrir salinn, og var komið upp olíukyndingu fyrir hann til þess að grípa til, þegar kuldar eru miklir. Grenivíkur. Skólabörnum fór vel fram. Gefið var lýsi, eins og undan- farna vetur. Vel hefur reynzt miðstöð sú, er sett var í skólahúsið. Djúpavogs. Nýtt barnaskólahús var tekið i notkun á þessu hausti. Mér sýnist það ágætt i alla staði. Kennslu- stofur 2, rúmgóðar og bjartar. Leik- fimi er kennd í skólaganginum, sem er breiður, lagður sléttu trégólfi og búinn ýmsum leikfimistækjum. Sal- erni og baðklefar aðskilin fyrir drengi og stúlkur. 2 herbergi eru ekki full- gerð, og mun í ráði að nota þau til kennslu í smíði og handavinnu. Vestmannaeyja. Haldið áfram inn- réttingu gagnfræðaskólahússins; var 2 nýjum stofum bætt við á þessu ári og byrjað á innréttingu leikfimishúss. Heilbrigði skólabarnanna með allra bezta móti. Tannlækningar voru lítið stundaðar á árinu. Ljósböð voru all- mikið stunduð, og fengu alls 131 barn, 30 drengir og 101 stúlka, notið þeirra á árinu. Lýsisgjafir við barnaskólann hafa verið i formi lýsisávísunar, sem börnin áttu að taka lýsi út á og nota heima hjá sér. Við athugun kom i Ijós, að æ færri börn taka lýsið út, og á síðustu 2 árum virðist lýsisnot- kunin hafa minnkað um helming, eða þar um bil. Það er augljóst, að ef tryggja á lýsisgjafir í skólanum, verð- ur að gefa lýsið þar, og virðist því sjálfsagt að nota lýsispillur eða belgi til þess. 12. Barnauppeldi. ísajj. Yfirleitt með sæmilegum hætti. Að vísu ber nokkuð á útivist barna á síðkvöldum með tilheyrandi ærslum, og meira mun um kvikmyndaferðir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Heilbrigðisskýrslur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.