Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Side 170

Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1954, Side 170
1954 — 168 10160 km. MeSalvegalengd í ferð 74,2 km. í 50 ferðum voru farnir 100 km eða meira. Allar ferðir ársins farnar í bifreið. 15. Slysavarnir. Grenivikur. Skýlin á Látrum og í Keflavík munu i góðu lagi, en öðru máli er að gegna um skýlið á Þöngla- bakka. Það er orðið ónothæft. Er því i ráði að reisa þar nýtt skýli i vor; grunninn á að steypa, en láta smíða liúsið á Akureyri og setja það saman ytra. Sér Slysavarnardeildin hér um smíði hússins. Skólabörn hér i hreppnum læra sund í sundlaug Slysa- varnardeildarinnar. Vestmannaeyja. í góðu horfi hér, og er sérstaklega vel fylgzt með fiski- bátum á vertið. 16. Tannlækningar. Búðardals. Enginn tannlæknir kom hér á árinu, og er þess þó brýn þörf. Sá myndi hafa nóg að gera. Ekki er nægilegt að fá aðeins tannsmið hing- að, því að tiltölulega fátt fólk þarf á gervitönnum að halda. Það getur og frekar farið suður til Reykjavíkur til slikra hluta, en ókleift er fyrir flesta að fara suður til að láta gera við tennur sinar. Reykhóla. Tannsmiður dvaldist hér nokkra daga síðast liðið sumar. Hólmavíkur. Einungis tannsmiður komið hér undanfarin ár. Hvammstanya. Sami tannlæknir og hér var i fyrra dvaldist enn á Hvammstanga um skeið i sumar og vann að viðgerðum og tannsmíðum. Höfða. Tannlæknir og tannsmiður dvöldust hér i vikutíma síðast liðið vor og smíðuðu nokkra góma. Ólafsfj. Ole Bieltvedt, tannlæknir á Sauðárkróki, var hér nokkrar vikur að sumarlagi, enn fremur aftur nokkr- ar vikur fyrra hluta vetrar við skóla- tannlækningar. Þórshafnar. Tannlæknir frá Akur- eyri dvaldist hér í viku í sumar og smiðaði tennur i nokkra sjúklinga. Vopnafj. Óli Baldur tannsmiður dvaldist hér hálfsmánaðartima í júli, gerði við tennur og smíðaði tennur i alla, sem báðu. Áður hafði héraðs- læknir alhreinsað 7 munna. Seyðisfj. Ástandið hefur farið batn- andi fram að þessu, en nú eru þvi miður horfur á, að tannlæknirinn sé á förum héðan, og er þá hætt við, að sæki í fyrra horf. Kirkjubæjar. Væri mikil þörf, að skipulag kæmist á ferðir tannlækna út um land, þannig, að viðgerð á tönn- um skólabarna væri fastur liður i starfi þeirra og gæti farið fram árlega. Þó að tannlæknir hafi komið hér 2 siðast liðin ár, hafa not af því verið minni en vonir stóðu til, að þvi er skólabörnum við kemur, þvi að fólk setur fyrir sig kostnað og fyrirhöfn, sem tannviðgerðir hafa i för með sér. Vitanlega væri æskilegast, að reynt væri að draga úr tannskemmdum með því að forðast það, sem helzt verður til að valda skemmdum. Flestir vita, hvað helzt ber að forðast, en fara þó lítið eftir því. 17. Samkomuhús. Kirkjur. Kirkjugarðar. Búðardals. Hvergi gott samkomuhús i héraðinu. Umbætur fóru þó nokkrar fram á samkomuhúsi Miðdælinga. Þó vantar í það upphitun. Eins er víst farið um kirkjurnar. í flestar þeirra er ekki komandi vegna kulda. Vill til, að sjaldan er til kirkju farið, en komi shkt fyrir, verða menn að vera vel búnir skjólldæðum, ef kalt er í veðri, því að annars er hætt við ofkælingu. Engan kirkjugarð hef ég séð hér, sem ekki er að einhverju leyti vanhirtur. Reykhóla. Tilfinnanlega vantar fé- lagsheimili i Reykhólahrepp. Stendur það öllu félagslifi mjög fyrir þrifum, þó að ekki vanti félagafjöldann. Kirkj- ur eru 4 í héraðinu. 2 er allvel við- haldið. Hinar eru hrörlegar. Kirkju- görðum lítill sómi sýndur. Hólmavíkur. Samkomuhús það, er íbúar Kirkjubólshrepps eru að reisa af mesta myndarskap, verður e. t. v. tekið í notkun seint á þessu ári. Braggakumbaldi sá á Hólmavík, sem notaður er til skemmtanahalds, er að verða gersamlega ófær til slikra hluta, og getur jafnvel verið háski að koma
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.