Úrval - 01.12.1944, Page 3
Mh. 6
TlMARITSGREINA I SAMÞJOPPUÐU FORMI
3. ÁRGANGUR <:• REYKJAVlK •:> NÓV.—DES. 1944
Þeir strita meðan aðrir hvílast, þeir vaka
meðan aðrir sofa.... Þetta eru þeirra —
Jólafórnir.
Úr bókinni „Ljóð og línur“,
eftir Jónas Þorbergssoa.
1 7EGIRNIR og einkum járn-
* brautimar mega teljast
æðakerfi landanna. Umferðar-
straumurinn frá öllum greinum
þeirra kerfa fellur saman í eina
megin-lífæð. Þar er hvíldarlaust
áframhald jámbrautarlestanna
með dýra farma fólks og flutn-
inga.
Ein þess konar hfæð liggur
gegnum ægilegt hrjósturlendi
norðan megin stórvatnanna í
Ontario í Kanada, — berar
klettabungur á 600 mílna svæði.
Auga ferðamannsins þreytist
af að horfa yfir þessi grjót-
flæmi. Þess sjást merki, að lífið
hefir beðið þar ósigur. Auön
og dauði ráða þar ríkjum, síðan
tungur eldsins sleiktu upp gróð-
urteiga landsins. Sólbruni hinna
heiðu, kyrru sumardaga hefir
gert gróðurleifarnar að lostæt-
um eldsmat. Ölkofri hefir víðar
gætt elds en á íslandi. Hálf-
brunnir trjástofnar standa þar
hörðum rótum í djúpum sprung-
um klettanna og bíða fullrar
eyðingar.
Við og við sjást stakir og
eyðilegir kofar við veginn. í
þeim kofum búa brautarverð-
irnir, þeir, sem gæta járnbraut-
anna, að þær séu í góðu ástandi
og ekkert geti valdið slysum.
Undir trúmennsku þessara
manna, meðal annara, á ferða-
maðurinn líf sitt og limi. Hópar