Úrval - 01.12.1944, Blaðsíða 128
126
ÚRVAL
leika sálarinnar, þá taldi hann
sig einnig hlutlausan. „Þetta
vandamál (um ódauðleikann)
sagði hann, „er ofar mannleg-
um skilningi.......En maður
getur gert skyld sína.“
Skylda hans var, að því er
honum virtist, að erfiða sleitu-
laust alla ævi til þess að færa
meðbræðrum sínum svolítið
meira ljós. Og hann lagði hart
að sér, eins og við höfum séð,
þó tvennt stæði mjög í vegi
fyrir honum — auður hans, sem
gerði allt erfiði óþarft, og sjúk-
dómurinn, sem nærri svifti
hann allri starfsgetu. En hann
ruddi þessum erfiðleikum úr
braut sinni með staðfestu sinni
og ljúflyndi konu sinnar. Því
að Emma Darwin, sem hann
viðhafði þau ódauðlegu um-
mæli um, að væri „hin bezta af
öllum eiginkonum," var „skil-
yrði þess, að honum var kleift
að þola erfiðið og berjast bar-
áttunni til enda“. Enda þótt
hún aðhylltist kennnigar ensku
kirkjunnar, stóð hún samt við
hlið hins trúlausa manns síns.
Hún lagaði líf sitt eftir lífi
eiginmannsins, sem var alltaf
hálfgerður sjúklingur, hún
hvatti hann, án þess að leggja
að honum, hún fylgdist með til-
raunum hans og las prófarkir
fyrir hann og hún styrkti rölc
hans með áhrifamiklum orðum
og setningum. Framar öllu
hjúkraði hún honum með slíkri
blíðu og nærgætni, ef hann var
þjáður, að hann sagði oft við
hana: „Það liggur við að það
borgi sig að vera veikur, til
þess að vera- hjúkrað af þér.“
En Darwin galt ástúð konu
sinnar með jafn innilegum til-
finningum. Hið fagra samræmi
í lífi þeirra speglaðist í börn-
unnm — þau voru öll alin upp
samkvæmt hinni ágætustu
brezku siðvenju í glaðværð,
höfðingslund og gagnkvæmri
virðingu.
Tillitssemi — það er að taka
tillit til tilfinninga annarra —
var grunntónninn í skapgerð
Darwins. Þegar hann kom til
London í síðasta sinn, 73 ára
gamall, fekk hann aðsvif, þegar
hann var að ganga inn í hús
vinar síns. Vinur hans var ekki
heima; en brytinn, sem tók
eftir að Darwin var lasinn, bað
hann að koma inn.
„Verið ekki að hafa fyrir
neinu, ég næ mér í vagn, sem
ekur mér heim.“ Og hinn hugs-
unarsami, gamli náttúrufræð-
ingur staulaðist frá dyrunum.