Úrval - 01.12.1944, Blaðsíða 4
2
tJRVALi
þessara manna sjást að vinnu
við brautina. Þeir rétta úr
bakinu, meðan lestin þýtur fram
hjá. Nemi lestin staðar, til að
taka vatn eða kol, og gefist
ferðamanninum færi á að at-
huga þessa menn, þá verður
honum starsýnt á þá, og hann
gleymir þeim seint. Margir
þeirra eru Rússar og Pólverjar.
Það er eins og skipbrotsmenn
lífsins séu þarna saman komnir.
Það er eins og þessir menn hafi
unnið í hlekkjum, og þreyta og
kúgun margra kynslóða sé sezt
að í andlitsdráttunum. Þeir
stara á ferðamanninn tinnu-
svörtum, soltnum augum, eins
og þeir vildu spyrja, hvort hann
hafi ekki komið við á einhverj-
irm kærum stað; hvort hann
hafi ekki fréttir að flytja af
einhverju, sem aldrei getur úr
minni liðið.
Dreifðir yfir 600 mílna svæði
eiga þessir menn í baráttu við
ægilegan vetrarkulda og ofur-
magn sumarhitans á beru grjót-
inu. Vinna þeirra er hin þyngsta
slitvinna, átök og mokstur. Á
veturna eru þeir venjulega tveir
og tveir í hverjum kofa. Það er
hljótt um hið þunga skyldustarf
þessara manna. En þeir halda
lífæð landsins sláandi. Aldrei
hefir nokkur konuhönd strokið
úr þreytufellingunum í lífi
þeirra þarna í auðninni, aldrei
tekið til í híbýlum þeirra. Og
aldrei hafa ómað þar barna-
hlátrar; aldrei hefir lítil hönd
klappað þar „um fölnaðan
vanga“. Tómleiki og þreyta
leiða þá hægt til grafar. En
meðan þeir fá orkað, vinna þeir
skyldustarf sitt og forða sér og
ef til vill fjarlægum ástvinum
frá skorti.
Borgirnar duna af jólaviðbún-
aði. Járnbrautarlestirnar koma
inn á brautarstöðvarnar, þung-
ar og þrammandi, og varpa
öndinni mæðilega um leið og
þær nema staðar. Þær eru
komnar vestan og austan frá
hafi, á harðahlaupum yfir fjöll
og gegnum auðnir, yfir frjósöm
akurlönd og gegnum skóga. —
Fólkið á járnbrautarstöðvunum
treðst og ryðst, þúsundir manna.
Jólagestirnir eru að koma, ást-
vinir og kunningjar úr f jarlægð.
Þeir koma með jólagjafir, og
jólagjafirnar bíða þeirra. —
Heima fyrir er allt hreint og
skygnt og fágað, þar sem efnin
eru nóg. Borgirnar duna. Um-
ferðin er ægileg á strætunum.
Kliður hlátra og háværra radda