Úrval - 01.12.1944, Blaðsíða 51
DÓMSMORÐ I SUÐURRlKJUNUM
49
og sagði „Verið þið sælir.“ Böð-
uilinn spennti ólarnar, gekk frá
raftenglunum, og gamli prest-
urinn þuldi, „Ég er upprisan
og lífið . . Andartak fór titr-
ingur um grannvaxinn líkamann
í stólnum, og svo hleypti full-
trúi hins sjálfstæða Alabama-
ríkis á tvö þúsund og þrjú
hundruð volta spennu.
Þeir grófu hann í fangelsis-
garðinum, af því að engir að-
standendur gerðu kröfu til að
fá líkið. Blað mitt flutti væmna
frásögn af aftöku lögreglu-
morðingjans. Þar stóð, að
fréttaritarinn hefði átt viðtal
við fangann og að síðustu orð
hans hefðu verið, „Ég hefi
fundið guð!“Síðastamálsgreinin
var ekki í rökréttu framhaldi
af því, sem á undan var komið.
Maðurinn, sem sá um umbrotið
á blaðinu, mundi hafa strikað
hana út, ef hún hefði náð yfir
á annan dálk. Hún hljóðaði á
þessa leið: „Á meðal átta
negra, sem einnig voru líflátn-
ir í gærkvöldi, var Roosevelt
Wilson, 22 ára, dærndur fyrir
nauðgun í Webster 'Country.“
Verið getur, þegar ég lít aft-
'til þessa atviks, að ég geri of
mikið úr þessu máli Roosevelts
Wílsons. Það er ljot saga, um
ólánsama konu og móðurlaus-
an negradreng. Hún getur ekki
talizt algild fyrir allan þann
fjölda nauðungarmála út af
negrum og hvítum konum, sem
ég hefi verið vitni að, af því að
það getur fremur talizt undan-
tekning en regla, að sakborn-
ingurinn sé saklaus. En eigi að
síður var hér saklaus maður
líflátinn.
En það er augljóst, að dóms-
morð eins og þetta varðar ann-
að og meira en ákærendur og
sakborninga. Það varðar trú og
von og kjark heillar þjóðar. Það
er ekki að undra, þótt okkur
reynist erfitt að vekja hina
amerísku þjóðarsál til varnar
sjálfri sér. Það er ekki að undra,
þótt við getum ekki eygt í gegn-
um þokubakka okkar eigin
mannfyrirlitningar hugsjón,
sem er þess virði að fórna lífinu
fyrir. Við erum öll sálsjúk í
Ameríku. Það er sálsýking
hins algera sinnuleysis. Uppi-
staða þess er andlegur tómleiki,
en ívafið mannfyrirlitning.
Þegar ég hefi friðþægt fyrir
sinnuleysi mitt og sjálfsgleði,
mun ég væntanlega reisa minn-
isvarða berfættum, svörtum
dreng, sem hét — Roosevelt
Wilson.