Úrval - 01.12.1944, Blaðsíða 117
ÐARWIN
115
hugarins úr viðjum þekkingar-
leysisins, á sama hátt og Lin-
coln var lausnari mannslíkam-
ans úr fjötrum þrælahaldsins".
Árið 1809 fæddust raunar
óvenjulega margir snillingar
— Daiwin, Lincoln, Gladstone,
Chopin, Mendelssohn, Poe,
Tennyson, Oliver Wendell
Holmes og Elizabeth Barret
Browning, svo að nokkrir séu
nefndir. Öll þessi „afburðabörn
œannkynsins" lögðu fram sinn
skerf til aukinnar fegurðar og
göfgi í heiminum — og skerf-
ur Darwins var ekki síztur.
Hann var kominn af ágætu
fólki í báðar ættir. Afi hans í
föðurætt, Erasmus Darwin, var
frægur náttúrufræðingur og
rithöfundur. Langafi hans í
móðurætt var Josiah Wedg-
wood, hinn víðkunni stofnandi
Wedgwood leirkerasmiðjanna.
Það var því ekki iiema eðli-
legt, að áhugi á listum og vis-
indum væri ríkjandi í Darwins-
fjölskyldunni.
1 bemsku var Darwin gæf-
lyndur, íhugull og mjög eftir-
tektarsamur. Jafnvel þó að
hann lenti í hættu, hélt hann
áfram athugunum sínum, þrátt
fvrir óttann. Dag nokkurn,
þegar hann var niðursokkinn í
hugsanir sínar eins og venju-
lega, gekk hann fram af virkis-
brún í Shrewsbury. Plann fann,
að hann hrapaði og bjóst við
dauða sínum. En hann var þó
fullkomlega með sjálfum sér.
Þetta var aðeins ný, athyglis-
verð reynsla fyrir vísindalega
hugsandi pilt. „Fjöldi hugs-
ananna, sem þutu um hugskot
mitt, meðan á þessu stutta og
óvænta falli stóð, var ótrúleg-
ur ... það virðist tæplega koma
heim við þær fullyrðingar sál-
fræðinga, að sérhver hugsun
taki vissan tíma.“
Frá barnæsku hafði hann þá
venju að athuga hlutina sjálf-
ur. Hann rannsakaði steina,
skeljar, peninga, egg, blóm og
skordýr. Hann veiddi sjaldan
lifandi skordýr, því að hann
vildi heldur taka þau dauð.
Honum fannst rangt að drepa
þau með eigin hendi. Samt sem
áður gerði hann sér enga rellu
út af því að skjóta fugla — í
f jarlægð. Hann stundaði veiðar
árum saman, uns hann dag
nokkurn var vottur að kvölum
særðs fugls og ákvað að verða
aldrei framar valdur að þján-
ingu eða clauða nokkurrar lif-
andi veru sér til dægrastytt-
ingar. „Milt hjartalag,“ sagði