Úrval - 01.12.1944, Blaðsíða 84
82
'ÚRVAL
ig almenningsheill krafði, að
unglingum, sem vildu læra
handverk og töldu sig hafa
bolmagn til að gera það, skyldi
vera bægt frá því, en í stað
þess vísað í fylkingar atvinnu-
lausra manna, þar sem þeir
sátu á hakanum jafnvel í at-
vinnubótavinnu, því að fjöl-
skyldufeður sátu fyrir henni,
og altítt var, að útslitnir menn
voru í atvinnubótavinnu, af
því að þeir töldust vera fjöl-
skyldufeður, en fullfrískir,
ungir synir þeira sátu heima,
eða ráfuðu um göturnar og
biðu tjón á sál og líkama fyrir
bölvun iðjuleysisins. Er þetta
almenningsheill, þegar á allt
er litið ? En þess vegna er
spurt, að þetta er félagsmál,
og enn eru í gildi ákvæði í lög-
um, er fela í sér möguleika til
að takmarka aðgang að ýmsu
iðnnámi, þótt framkvæmdin sé
nú rýmri en áður.
Þegar eftirspurn eftir fag-
lærðum mönnum jókst skyndi-
lega nú á styrjaldartímunum,
ekki sízt fyrir tilkomu setuliðs-
ins, kom brátt í ljós, að mikill
skortur var á faglærðum mönn-
um við byggingar o. fl. Þetta
hafði í för með sér mikla hækk-
un á kaupgjaldi iðnaðarmanna,
samkvæmt lögmálinu um fram-
boð og eftirspurn, og hygg ég
að þar hafi orðið alveg óvenju-
legar kauphækkanir miðað við
aðra launamenn, einkum ef
miðað er við ákvæðisvinnu-
taxta fagmanna. Þetta hefir
raskað stórlega hlutfallinu
þeim launamönnum og öðrum
í óhag, sem ekki höfðu af
hliðstæðri aukningu kaupget-
unnar að segja, en urðu að
kaupa þessa vinnu beint eða
óbeint, annað hvort er þeir
byggðu sjálfir eða urðu að
leigja sér húsnæði með hinum
mestu ókjörum. Þar við bætt-
ist, að gripið var til þess að
ráða lagtæka menn til ýmiss-
ar vinnu fyrir nálega fagmanna-
kaup og verður það að teljast
mjög óheppilegt, bæði frá sjón-
armiði þeirra, sem unnið var
fyrir og einnig frá sjónarmiði
vel menntaðra iðnaðarmanna,
er vilja setja markið hátt, hver
í sinni grein. Gegnir nokkurri
furðu, að enn skuli vera í lög-
um ákvæði, er heft geta að-
gang að iðnaðargreinum, sem
sýnilegt er, að muni taka örum
vexti á næstu árum, ef full-
nægja á þörfum þjóðarinnar á
ýmsum sviðum. Ráðgerð er
mikil áætlun um rafvirkjanir