Úrval - 01.12.1944, Blaðsíða 77
BYGGINGAMÁL FRÁ FÉLAGSLEGU SJÖNARMIÐI
75
Þetta háa verð, sem ég nefndi,
nær aðeins til dýrustu verzlun-
arlóða í miðbænum, en það
segir sig sjálft, að sá, sem rek-
ur verzlun á slíkum stað, veltir
kostnaðinum af lóð og öðru yf-
ir á þá, sem við hann verzla,
en það þýðir, að föt, fæði og
annað, sem telzt til brýnustu
nauðsynja, er miklu dýrara
en ella mundi og af þessu leiðir
aftur, að einstaklingurinn hef-
ir miklu minna fé aflögu til
þess að fá sér mannsæmandi
íbúð. Dýru lóðirnar eiga því
sinn þátt í að hækka vöruverð-
ið og flæma fátæklinga nið-
ur í kjallaraholur, sem dæmdar
eru óhæfar sem mannabústað-
ir. Gangur málsins getur verið
sá, að nýgift hjón setjist að í
snoturri íbúð. Þegar fyrsta
barnið kemur, annað og hið
þriðja, aukast þarfirnar, að því
er varðar fæði og klæði, en
ekki víst að tekjurnar aukist
að sama skapi, og afleiðingin
getur orðið sú, að hjónin
hrökklist með börnin úr snotru
íbúðinni, niður í kjallaraholu,
þar sem leiga er lægri, en
draumur þeirra um eigin íbúð
verði að engu, nema hið opin-
bera tæki mál þeirra að sér.
Við skulum hugsa okkur, að
verið sé að selja lóð hérna í
miðbænum í Reykjavík og hver
fermetri lóðarinnar kosti 1200
krónur, en dæmi er til um
hærra verð. Kaupandinn greið-
ir með 10 króna seðlum og rað-
ar þeim á lóðina. Þegar hann
er búinn að telja fram féð,
kemur í ljós, að lóðin er alþak-
in 10 króna seðlum, svo að
hvergi er bil á milli. Síðan rek-
ur kaupandinn þarna verzlun,
og ef nokkur er sá, að hann
vilji halda því fram, að þetta
hafi ekki áhrif á vöruverðið
veit ég ekki, hvernig hann
hyggst að rökstyðja það. En
ef það er viðurkennt, að hátt
vöruverð brýnustu nauðsynja
hljótist af þessu, er hitt jafn-
víst, að húsaleiga fyrir íbúðir
verður há í húsum, sem byggð
eru á dýrum lóðum, og hátt
lóðaverð stendur því í vegi,
að almenningur geti byggt á
eignarlóðum, en verði þeirra er
þó velt yfir á hann engu að
síður, ýmist í vöruverði, húsa-
leigu eða á annan hátt.
Hér er því vandamál á ferð-
inni, sem hefir mikla félagslega
þýðingu, vandamál, sem flest
bæjarfélög, kauptún og þorp
standa andspænis, þótt mismikið
kveði að. Það mun láta nærri, að