Úrval - 01.12.1944, Blaðsíða 35
UNDAN OKI ÞJÖÐVERJA
33
ar, — svikarar Frakklands.
Nú hefði verið ákveðið að
merkja þær svo, að allir Frakk-
ar vissu, hvað þær væru. Sér
væri persónulega mikil ánægja
að því, að krúnuraka þær. Hon-
um voru fengin skæri, en ungu
stúlkunni var skipað að setj-
ast á stólinn, og tók unglingur-
inn þegar að snoðklippa hana,
— en hún hafði hár mikið og
fagurt.
Nú tóku áhorfendurnir að
skiptast í tvo flokka. Fólkið,
sem næst var konunum, komst
í uppnám af ánægju, hló og
klappaði lófum, þegar hárlokk-
arnir féllu til jarðar. Hinn
hópurinn, sem fjær stóð,
horfði á þetta rneð vanþóknun.
Stúlkan var föl og sýnilega
óttaslegin, en bar sig vel. Hún
bar höfuðið hátt og gerði fólk-
ínu það ekki til geðs að kveinka
sér. Það var aðeins gamla kon-
an, sem ekki gat tára bundizt.
Þarna var drengur um ferm-
ingu, sem skemmti sér konung-
lega. Hann leit til mín og sagði
á ensku: „Gott? gott?“ En ég
svaraði því neitandi, og bætti
því við, að það væri bæði
grimmdarlegt og óréttlátt.
Menn höfðu haldið, að ég
skildi ekki, hvers vegna þetta
var gert. En nú tóku ýmsir af
báðum flokkum að skýra þetta
fyrir mér. Amman rak lítinn
greiðasölustað, þar sem þýskir
liðsforingjar höfðu haldið til,
og með því að greiða „svarta-
markaðs“-verð, höfðu þeir
fengið þar allt það bezta, sem
til var matarkyns þar í þorpinu,
en vegna skömmtunar, höfðu
þorpsbúar sjálfir haft matvæli
af skornum skammti. Þessir
foringjar hefðu síðan sofið hjá
þeim mæðgunum, og greitt
móðurinni fyrir. Skiptar voru
þó skoðanir um dótturina. Sum-
ir héldu því fram, að sá hefði
einn verið munurinn á þeim, að
dóttirin hefði verið metin til
hærra verðs. Þeir sem misk-
unsamari voru sögðu, að móð-
irin bæri alía sökina. En öllum
bar þó saman um, að dóttirin
hefði verið skækja þýzks liðs-
foringja frá því hún var fjórt-
án ára gömul!
Hatrið á þessum konum var
sprottið af þessum sökum. Ekki
það, að þær hefðu að öðru leyti
verið vinveittar Þjóðverjum,
heldur, að þær hefðu grætt
stórfé á þessum viðskiptum
við þá. Því var fleygt, að móð-
irin hefði tekið 500 til 1000
franka fyrir greiða við foringj-