Úrval - 01.12.1944, Side 48

Úrval - 01.12.1944, Side 48
46 ÚRVAL. og að ég hefði ekki unnt mér hvíldar, fyrr en ég var búinn að frelsa hann. Ég vildi, að ég gæti sagt ykkur, að ég hefði sagt húsbónda mínum, ritstjór- anum, til syndanna og sýnt honum fyrirlitningu mína með því að segja upp starfi mínu, og að ég hefði síðan barizt fyr- ir frelsi Roosevelts með útgáfu flugrita, sem prentuð voru í handpressu. En ekkert af þessu skeði. Ég skýrði málið fyrir rit- stjóranum og stakk upp á því að við birtum aðra grein um það, en hann sagði, „fjandinn sjálfur, Bill, ertu vitlaus?“ Og ég kinkaði kolli og sagði, „já, þér hafið víst rétt fyrir yður.“ Ég fór til ríkisstjórans og sagði honum alla málavexti. Hann ypti öxlum og sagði. „Heyrðu, drengur, ég held þú séii; ekki með öllum mjalla. Hvað heldurðu að ég geti gert í þessu? Þú veizt, hvaða afleið- ingar það mundi hafa, ef ég færi að blanda mér í mál eins og þetta.“ „Já þér hafið víst rétt fyrir yður,“ sagði ég. „En ég hefi les- ið um ríkisstjóra, sem ekki gátu sofið eftir að þeir höfðu látið viðgangast, að saklaus maður var tekinn af lífi.“ Hann hló. Ég hló líka. Það var hlátur, sem menn hlæja stundum til þess að verjast gráti. Og svo — þótt ótrúlegt megi virðast — gleymdi ég Roosevelt Wilson alveg, og það var aðeins af tilviljun, að ég sá hann aftur. Aftökur í ríkisfangelsinu í Alabama fara alltaf fram á fimmtudögum. Því sem næst vikulega steikir ríkið eitthvað af svörtu kjöti og stöku sinn- um eitthvað af hvítu kjöti til tilbreytingar. I þetta sinn var hvítur piltur, sem drepið hafði lögregluþjón, sendur þangað. Hann var einhversstaðar að vestan, og hafði verið í flotan- um. Svo lenti hann á villigöt- rnn, og eitt sinn, þegar lög- reglan ætlaði að taka hann fast- an, varð hann hræddur, missti stjórn á sér og skaut einn lög- regluþjóninn. Við höfðum skrif- að mikið um mál hans og af meðaumkun, og nú var ég send- ur til að vera viðstaddur af- töku hans. Fangavörðurinn var óþolin- móður. „Flýtið ykkur, piltar,“ sagði hann við okkur blaða- mennina. Við eigum eftir að stúta átta svörtum skrokkum,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.