Úrval - 01.12.1944, Side 79
BYGGXNGAMÁL FRÁ FÉLAGSLEGU SJÓNARMIÐI
77
gerðar götur. Ýmsir hafa að-
eins byggt eina hæð, þar sem
fyrirhugað var að tveggja
hæða hús risi eða meira, og er
þar fjárskorti oftast um að
kenna. Bærinn hefði getað var-
ið nokkru af því fé, sem farið
hefir til gatnagerðar út um
holt og hæðir vegna útþenslu
bæjarins, til að greiða fyrir
því, að slíkar'hálfbyggðar lóðir
yrðu cílbyggðar, áður en farið
væri að byggja annars staðar,
t. d. með hagkvæmum lánum
eða á annan hátt.
Útþensla byggðarinnar kost-
ar enn meira en það sem fer í
götur og þau mannvirki, er
þeim fylgja og nefnd hafa ver-
ið. Allt þetta kostar viðhald og
er því framtíðarbaggi, sem
bundinn er fyrr en þurfti.
Þar við bætist, að fólkið, sem
býr í úthverfunum, hefir af
því beinan kostnað. Starfandi
fólk þarf að komast til vinnu
og frá, og sé leiðin löng, verður
það að fara í strætisvögnum
og það kostar fé, en af því hlýzt
aftur, að minna fé verður af-
lögu til annara þarfa. Menn
geta ekki neytt matar síns
heima, og kynni það að hafa í
för með sér, að mataræðinu
yrði fremur ábótavant í ýmsu
en ella mundi, meðan ekki er
kostur á matstofum í sambandi
við vinnustöðvarnar.
Ég hef nú rakið nokkuð
fyrsta atriðið, er á vegi verður,
þegar rætt er um byggingar,
nefnilega lóðamálin. Bg hef
sýnt fram á, hverja félagslega
þýðingu lóðamálin hafa í ýms-
um efnum og einkum gert að
umtalsefni, hversu þessu er
háttað í þéttbýlinu. Það er
óhætt að fullyrða, að bæjar-
félögin stefna að því að eignast
sjálf allt það land, er þau þarfn-
ast, a. m. k. er svo hér í
Reykjavík, og hefir mjög mik-
ið verið gert í þeim efnum bæði
hér og annars staðar. Og það
er jafnóhætt að fullyrða, að
félagsleg bót fæst ekki í lóða-
málum, fyrr en bæjarfélögin
haf eignazt sjálf hvern ein-
asta ferþumlung landsins, er
þau standa á. Þá fyrst geta
þau leigt byggingalóðir við
sanngjörnu verði, hagnýtt bæj-
arlandið til fulls og á þann
hátt, er bezt hentar hagsmun-
um heildarinnar. Eins og nú
standa sakir er eignarhald ein-
staklinga á lóðum oft á ýms-
an hátt þrándur í götu skipu-
lagi bæjanna. Limafallsjúkir
timburkofar standa víða sem