Úrval - 01.12.1944, Síða 93

Úrval - 01.12.1944, Síða 93
LlFSINS TRÉ 91 ■er einnig gerður úr efnum, sem þetta dásamlega tré leggur til. Þau eru blönduð eða leyst upp í vatni og pressuð og lamin á milli sléttra fjala, í þunnan og fagran dúk, sem nefndur er tapa. tJr berkinum fást tæjur, er fólkið notar ýmist sem garn í net, eða fléttar þær eða tvinn- ar í reipi og kaðla. Að vísu eru slíkir kaðlar ekki jafngildir hampköðlum, hvað styrkleik snertir, en sjóherinn notar þá mjög mikið vegna þess, hversu léttir þeir eru, og eru þeir til dæmis hentugir í vörpustrengi. Burstar og mottur, sem gerðar eru úr þessu efni munu víða vera til á heimilum hér í Evrópu. Úr stórum pálmatrjábolum eru gerðir eintrjáningar, og fyrr á öldum voru af þessum viði smíðaðir hinir miklu víg- drekar, sem víkingar á Kyrra- hafseyjum fóru á leiðir sem skiptu þúsundum sjómílna. Voru viðirnir þá festir saman með garni, sem gert var af tref jum úr þessu sama furðulega tré. Á vorum dögum koma not kókospálmans ekki aðeins að gagni íbúum Kyrrahafseyj- anna, heldur og öllum hinum vestræna heimi. Því að „kopra“, hinn þurkaði „innmatur“ hnet- unnar, er nú notuð til smjör- líkis-, sápu- og kertagerðar. — Eftir því, sem þarfir heims juk- ust fyrir þessar vörur, jókst og jafnframt ræktun þessarar þörfu trjátegundar. Milljónir trjáa hafa verið gróðursettar víðsvegar, þar sem skilyrði hafa verið til þess. Því að þótt tréð dafni bezt á Kyrrahafseyjunum, getur það þó einnig þrifist bæði í Austur- og Vestur-Indíum, hitabeltislöndum Ameríku og í Indlandi. Á eynni Ceylon einni er talið að séu nú röskar 20 milljónir slikra trjáa. Fyrir styrjöldina var talið, að heimsframleiðslan af kopra næmi röskum 2 milljónum smá- lesta. Þessar mikiu birgðir fengust víðsvegar að: fyrst og fremst frá hinum víðáttumiklu pálma-ekrum, sem voru í eigu breskra og amerískra fyrir- tækja, en þó létu menn sig ekki muna um að sækja kopra til smáeyja, sem framleiddu aðeins örfáar smálestir. Talið er að úr 5 þúsund hnetum fáist smálest af kopra, og má af því marka, að æði margar milljónir trjáa þarf til að gefa af sér þetta mikla magn.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.