Úrval - 01.12.1944, Qupperneq 130
I2S
TJRVAL
mikið vatn. Líkamleg og and-
leg líðan þeirra, sem fengu syk-
urinn var miklu betri en þeirra,
sem engan sykur fengu.
Skýringin á. þessu fyrirbrigði
er sú, að venjulega nota nýrun
mikið vatn til að skola burt með
þvaginu úrgangssýrum, sem
nefnast ketone-sýrur. Þrúgu-
sykurinn kemur í veg fyrir að
þessar ketone-sýrur myndast.
Sparnaðurinn er svo mikill, að
fyrir hver 100 grömm, sem
neytt er af þrúgusykri, sparast
140 grömm af vatni. Það má því
með sanni segja, að þrúgusyk-
urinn sé bæði matur og drykkur.
— Science Digest.
OuðrækiiL
Ung' hjón áttu dóttur, sem var komin á þann aldur, að hún
var íarin að nota blýant. Þó að á því léki enginn vafi, að telpan
væri ekki örvhent, brást það samt aldrei, þegar hún var að
krota, að hún flytti blýantinn í vinstri höndina undir eins og
hún var orðin ein.
Hvemig sem foreidrarnir reyndu að fá skýringu á þessu, tókst
þeim það ekki, þangað til faðirinn loks gat fengið telpuna til
að leysa frá skjóðunni.
„TSg geri það af því að guð gerir það,“ sagði hún. Og þegar
hún var spurð að því, hvers vegna liún héldi að hann gerði það,
svaraði hún:
„Hann verður að gera það, því að Jesús situr við hægri
hönd hans.“
— Pei’cy C. Buck í „Psychology for Musicians".
URVAL tímaritsgreina í samþjöppuðu formi.
Ritstjóri Gísli Ólafsson, afgreiðsla Kirkjustræti 4, Pósthólf 365. —
Þeir, sem vilja gerast áskrifendur, eru beðnir að snúa sér til afgreiðsl-
unnar. Ætlazt er til, að hvert hefti verði greitt við móttöku. Á hinn
bóginn fylgja áskriftinni engar skuldbindingar um að kaupa tímaritið
fyrir fram ákveðinn tima, en með þvi að gerast áskrifandi tryggið þér
yður að fá tímaritið sent til yðar undir eins og það kemur út. Urval
er sent til allra bóksala á landinu og getur hver og einn gerzt áskrif-
andi hjá næsta bóksala.
UTGEFANDI: S TEI N D C R S P R E N T H.F.