Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1974, Page 57

Andvari - 01.01.1974, Page 57
andvari SVEINBJÖRN SVEINBJÖRNSSON OG ÞJÓÐSÖNGURINN 55 við þessa sótugu múra hljómuðu lílca í fyrsta skipti þeir tónar, sem órjúfanlega eru tengdir Ijóðinu. íslenzki þjóðsöngurinn varð til í þessu húsi. Þessa hefur nú verið minnzt að verðleikum með áletraðri minningarplötu, sem fest hefur verið á húsið. Þeir, sem hafa hrundið því verki í framkvæmd, eiga þakkir skildar. Þeir Sveinbjörn og Matthías höfðu verið skólabræður. En aldurs- og þroskamunur þeirra á þeim árum var svo mikill, að varla hefur þá verið um náin kynni þeirra að ræða. En eftir það lágu leiðir þeirra saman í Kvöldfélaginu svo nefnda, hinum merkilegu leynisamtökum menntamanna og stúdenta, sem störfuðu í Reykjavík á árunum 1861-74. Sveinbjörn var í félaginu þá tvo vetur, sem hann sat í Prestaskólanum, en Mattliías var ein af máttarstoðum þess miklu lengur. I Kvöldfélaginu kom fyrst fram sú hugmynd að minnast með nokkrum hætti þúsund ára byggðar á fslandi, og var hún á dagskrá félagsins öðru hverju allt frá ársbyrjun 1863 og fram á þjóðhátíðarvorið 1874. Er enginn vafi á því, að lofsöngurinn ,,Ó, guð vors lands“, sem síðar varð þjóðsöngur íslend- inga, á dýpstu rætur sínar í þeim anda, sem ríkti í Kvöldfélaginu. Þegar þessir gömlu kvöldfélagar hittust nú aftur, seint á árinu 1873, hafði Sveinbjörn gefið út fyrstu tónsmíðar sínar, píanólag, sem nú er að mestu gleymt, og sönglagið „Miranda". En honum mikluðust ekki þessi verk sín, og að sögn Matthíasar var hann lengi tregur til að tónsetja lofsönginn, þótt Matthías eggjaði hann til þess óspart. Má vera, að Sveinbirni hafi vaxið verkefnið í augum, því að upphaflega mun lofsöngurinn hafa átt að verða þáttur í ljóðaflokki eða kantötutexta. En af honurn var aldrei ort meira, svo að vitað sé. Brýning Matthíasar hreif á Sveinhjörn að lokum. Hann samdi lagið um vet- urinn eða vorið, hið fyrsta er hann gerði við íslenzkt Ijóð, að því er hann sjálfur segir. f marzmánuði frétti Sveinbjörn lát rnóður sinnar. Hún hafði andazt 8. janúar. Þetta munu hafa verið honum þungbærar fréttir, ekki sízt ef sú tilgáta er rétt, að skilnaður þeirra í Reykjavík rúmum fimm árum fyrr hafi ekki orðið í fullri sátt. Um þetta leyti hefur Sveinbjörn, ef að líkum lætur, verið að semja „Ó, guð vors lands". Ef til vill hefur hann í því verki fundið styrk í sorg sinni, ef til vill hefur harmurinn gætt hörpu hans nýrri dýpt og lyft anda hans í nyjar hæðir. Það eitt er víst, að lagið, sem nú var samið, tekur langt fram öllum öðrum tónsmíðum Sveinbjörns fram að þessum tíma að reisn og andagift, og raunar heldur það alltaf sérstöðu sinni meðal verka hans, sem þó eru mörg °g sum ekki smá í sniðum. Sunnudaginn 2. ágúst 1874 voru sungnar þrjár hátíðarmessur hér í Dóm- kirkjunni, hin fyrsta kl. 8 að morgni, þá hámessa kl. 10.30 og hin þriðja kl. 2.30
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.