Andvari - 01.01.1897, Blaðsíða 8
2
11 dætur, en engan son, giptust 8 af þeim og er
það eigi síður fjölmenn og merk ætt, en föðurætt
sjera Þórarins.
Sjera Böðvar Þorvaldsson lifði lengst æfi sinn-
ar við fremur þröng kjör, með mikla fjölskyldu, alls
átti hann 14 börn. Hann þjónaði mörgum brauðum,
var hann prestur í Gufudal árin 1822 — 27, og þar
var Þórarinn fæddur 3. maí 1825. Tveim árum síð-
ar fluttist faðir hans að Stað i Steingrímsfirði og síð-
an að Stafholti 1837 og loks að Melstað 1843. Um
það leyti byrjaði Þórarinn á skólanámi, sem dregizt
hafði vegna þess að faðir hans treysti sjer tæplega
að koma hinum þriðja syni sínum til mennta. Hann
var »ruglingur« á Bessastöðum 2 vetur og fjekk
fyrst inntöku í skólann með ölmusustyrk árið 1845.
Við hið síðasta próf á Bessastöðum vorið 1846 var
hann einn af 19 lærisveinum í efri bekk; alls voru
lærisveinar skólans, er fluttust með honum til Reykja-
víkur 33 að tölu, og lifa nú einir 6 þeirra. Síðan
var hann 1 ár í Reykjavíkurskóla og útskrifaðist
þaðan vorið 1847 með góðum vitnisburði.
Þórarinn varð stúdent 22 ára að aldri og stóð þá
hugur hans allur til háskóiauáms, og vildi hann
leggja lögfræði fyrir sig, en bæði var það að faðir
lians var efnalítill maður og tók þá að gjörastnokk-
uð aldraður, rjeð það hvorttveggja mestu um
það, að Þórarinn gekk á prestaskólann, sem þá var
stofnaður samsumars og útskrifaðist af honum sum-
arið 1849 með fyrstu einkunn, hlaut hann ágæta
einkunn fyrir ræðuframburð, sem enginn hefir síðan
fengið við þann skóla, og er það i munnmælum haft,
að hann hafi við prófið náð tungutaki Helga bisk-
ups, sem mestur ræðuskörungur hefir verið talinn^? J(J
því var svo aptur kennt um, að framburður sjera