Andvari - 01.01.1897, Side 103
.07
vötnum í Árnes-, Rangárvalla- og Kjósarsýslum við-
víkjandi lax- og silungsveiðum þar og svo með frarn
sjó frá Vík í Mýrdal vestur með, kringum Reykja-
nesskaga til Inn-nesja viðvíkjandi fiskiveiðum í sjó.
Um nokkurn hluta þessa svæðis (Kjósar- og Árnes-
sýslur)fór Feddersen sumurin 1884—1885 til þessað
rannsaka lax- og silungsveiðar, en þareð hann hefir
ekki birt neitt á prenti (nje skrifiega) um ferð sína
í Árnessýslu, að Þingvallavatni undanteknu, þá lang-
aði mig til að kynna mjer þetta svæði fyrst, til þess
að reyna að nokkru leyti að fylla upp í mikið skarð
í þekkingu vorri á lax- og silungsveiðum hjer á
landi. Feddersen hefir gefið skýrslu um ferð sína
1884 í Andvara 1885.
Jeg lagði af stað úr Reykjavík 5. júlí austur í
Grafning, hjelt svo þaðan austur yfir Sog og niður
að fossunum í því; þaðan niður að Hvítá og austur
með henni að Hestvatni, því næst að Apavatni og
Laugarvatni og svo suður yfir Biskupstungur að ár-
mótum Hvitár og Stóru-Laxár, yfir um Hvítá og
austur i Ytri-Hrepp, upp með Litlu-Laxá og Hvítá
og upp fyrir Kópsvatn, svo niður að Sóleyjarbakka
við Stóru-Laxá og austur með henni, þá austur yfir
hana að Stóranúpi.
Ur Ytri-Hreppnum fór jeg út á Vörðufell. Frá
Stóranúpi fór jeg niður með Þjórsá að Urriðafossi
og þaðan yfir ána að Herríðarhóli og vötnunum þar
í grennd, því næst austur yfir Holt með fram Ytri-
Rangá niður í Bjóluhverfi, svo austur að Odda, það-
an sem leið liggur austur undir Eyjafjöll og austur
að Vík í Mýrdal. Frá Vík sneri jeg aptur út á leið,
út með sjó, hjá Dyrhólum, með fram Eyjafjöllum,
út Landeyjar og Þykkvabæ að Hala í Holtum. Það-
an yfir Þjórsá, niður að Loptsstöðum, um Stokkseyri
7