Andvari - 01.01.1897, Blaðsíða 131
1-25
sprettur (kaldavermsl?) i botni og ána leggur þar
seint. Einnig verður þar opt vart við smáfisk (lax?),
sem jeg enn ekki hefi getað komizt yfir. Fiskiendur
eru opt á króknum. Það lítur þvi út fyrir, að lax
hrygni i þessum krók, enda verður áin hjer alltær,
þegar liður á sumarið. Selur kemur hjer upp iána
þegar fyrir sumarmál og er talinn slæmur gestur.
Hefur hann verið skotinn um nokkur ár frá Laugar-
dælum og Selfossi, og af alefli frá Selfossi tvö síð-
ustu ár; er hann því farinn að hörfa lir þessum
kafla árinnar, þegar kemur fram á sumarið. Veiði
er nú stunduð í Ölvesá frá Sandvík (5 bæjum, Kot-
f'erju, Selfossi og Laugardælum að austan, frá Auðs-
holti, Kirkjuferju, Árbæ, Heili, Laugarbakka og
Tannastöðum að vestan). — Alstaðar er veitt í stór-
riðin (3" 5'"—3" 3"') lagnet, sem lögð eru út frá
klappanefjum í straumstrengi; liggja þau í boga nið-
ur á við, því apturkastið neðan við nefin heldur net-
unum út frá landi, en framstraumurinn beygir ytri
endann niður eptir ánni. Lengst eru netin um 30 f.
Aðalveiðibæirnir eru: Selfoss, Laugardælir og Hell-
ir. Á Selfossi hefur verið veitt síðan fyrir aldamót,
og var hann lengi eini veiðibæritm við Ölvesá, en
eptir að lax fór að verða verzlunarvara, tóku fieiri
að veiða. Áður en veiðilögin komu, veiddist lax
aldrei fyrir fardaga. Nú hætta menn veiði snemma
í ágúst, enda þótt lögin leyfi veiði fram í miðjan
september. Á Selfossi hefur veiðin verið þannig á
síðustu 19 árum (samkvæmt góðfúslegri skýrslu S<-
monar Jónssonar): 1878 850 laxar og svo 188, 290,
830, 613, 562, 796, 736, 831, 609, 198, 173, 34, 429,
629, 187, 451, 246, 387 (árið 1896), og í líku hlut-
falli á hinum bæjunum. 1878—88 var allur þriðj-
ungur smálax (4—6 pd.) og nú er aptur farið að