Andvari - 01.01.1897, Blaðsíða 69
inum, en nálgasthann er neðar dregur; milli hrauns-
ins og fjallanna eru flóar og mýrar og slægjur góð-
ar; þar eru og tvö dálítil vötn, Arnarstaðavatn og
Sandrandavatn. Á graslendi þessu var til skamms
tíma byggð. Þar voru bæirnir Lækjamót, syðst,
Ottarsstaðir, Kollavíkursel og Krossavíkursel, en á
heiðinni sjálfri rétt við veginn voru Hrauntangi og
Heiðarmúli. Milli hraunkvíslanna eru mikil móalönd
og standa dólerítholt hér og hvar upp úr; dólerít-
hraun, ísnúin, eru alstaðar undir jarðvegi fratn í
sjó. Um kvöldið riðum við sama veg niður að Sand-
fellshaga. Þegar kemúr niður af heiðinni, má glögg-
lega sjá sprungur þær, sem hafa kubbað sundur
landið í Axarfirði, tvær sprungur eru gleggstar; þær
sjást vel í miklum fjarska í hálsinum fyrir ofan
Skinnastað; hin eystri klýfur hálsinn fyrir Smjörhól
(kot á móti Iiafrafellstungu), heldur svo áfram norð-
ur eptir og er glögg í hæðunum fyrir ofan Sartd-
fellshaga, í Háubrekku og viðar; pvttir eru sumstað-
ar í sprungunni og eru þeir hættulegir fyrir fé;
sumstaðar er vátn í henni. Vestri sprungan geng-
ur um hálsinn miðjan; til hennar sést líka i meln-
um fyrir neðan bæinn í Sandfellshaga. Stefna
sprungna þessara er naírri beint frá suðri til norð-
urs.
Næsta dag (17. ágúst) riðum við upp í Tungu-
dal og vorum þar tvær nætur i tjaldi, fór eg þaðan
um Tunguheiði og' skoðaði hinar miklu eldstöðvar,
sem þar eru. Við fórum fyrst fram hjá Hafrafells-
tungu og upp dalinn, upp hjá beitarhúsum, er þar
standa ofarlega og svo austur yfir hrygg í dalverpi
þar suðaustur af; í því eru miklir hagar af stör, elting
og laufgróðri, dalbotninn er sléttur og víða renna
smálækir niður úr hliðunum í djúpum farvegum og