Andvari - 01.01.1897, Page 211
205
við að geta fengið innflutningsleyfi fyrir allt islenzkt
sauðfje, með því að það er engan veginn jafnstórt
og feitt og fjeð frá Argentína.
Það væri æskilegt mjög að verzlun þessi kæm-
ist á og yrði til hagnaðar á báðar hliðar, bæði fyr-
ir seljendur á íslandi og fyrir þennan belgiska fjár-
kaupmann. Uppfyllist þessi skilyrði, má vænta þess
að hinir miklu belgisku fjármarkaðir standi fram-
vegis opnir fyrir innflutningi á lifandi sauðfje frá
íslandi.
Fjárverzlun í Belglu.
Flest af því, sem sagt hefur verið um fjár-
verzlun á Frakklandi, á einnig við í Belgíu. Þó
virðast mjer belgiskir kaupmenn vera fullt eins dug-
legir og hinir frönsku. Fjárkaupmenn á Frakklandi
sitja heima í »la grande patrie« og láta útlendinga
færa sjer allt heim, sem þeir þurfa við, en belgisk-
ir kaupmenn eru si og æ á ferðalagi í útlöndum til
þess að kaupa hinar erlendu afurðir á framleiðslu-
staðnum.
Hinir helztu fjárkaupmenn í Belgíu eru þessir:
Aug. Schmidt, Verviers, sem áður er nefndur.
Arthur Morren, Antwerpen, flytur manna mest
fje frá Argentína til Belgfu.
Gondrand fréres, Antwerpen, sama verzlunar-
hús og í Dunkerque.
Max Eoos, Antwerpen, sendi umboðsmann til
Noregs i fyrra til fjárkaupa, en keypti þó ekkert
þaðan, þvi honum líkaði hvorki gæði nje verð á
hinu norska fje.
Hardy, í bænum Thuillies.
Poels fréres, i bænum Warcoing.