Andvari - 01.01.1897, Síða 220
214
landi er frá 20—40 gylden (30—60 krónur) tunnan,
og í Belgíu 60—100 frankar (42—70 kr.) fyrirtunn-
una. Innflutningstollur er enginn.
EnsTcur saltþorslcur i tunnum (Laberdan). Verk-
unin á honum er i líking við hollenzkan flsk, en
varan er í sjálfu sjer verri, svo sem áður er sagt.
Arlega eru fluttar um 2000 tunnur af þessari teg-
und til Antwerpen. Tunnurnar eru minni og lje-
legri en hinar hollenzku, og eru í þeim að eins um
186 pund af fiski. Verðið var um 22 frcs (15 kr.
40 aura) tunnan, meðan jeg dvaldi i Antwerpen.
Hinn enski tunnufiskur er naumast eptirstæl-
ingarverður. Á hinn bóginn virðist mjer að pækil-
saltaður þorskur eptir hollenzkri fyrirmynd hljóti að
vera arðvænlegur fyrir íslenzka fiskiútgerð. Það er
furða, að þessi verkunaraðferð skuli alveg vera lögð
niður bæði á Islandi og 1 Noregi. Fyrir rúmri öld,
þegar mjög mikið kapp var lagt á að koma upp
íiskiveiðum á íslandi, var ekki um aðra fiskverkun
að ræða, og allt til þessa dags hafa Frakkar og
Ilollendingar verkað mikið af afla sínum á þenna
hátt. Þetta er því engin nýtízka, lieldur fer það
öllu fremur að verða ol' úrelt, ef nokkuð er. Kaup-
endur sækjast nú æ meira eptir þeim fiski, sem
mest líkist nýjum fiski, og það er þv/. í síðustu for-
vöð, ef íslenzkir þilskipaútgerðarmenn vildu nú gjöra
tilraunir til að taka upp þessa gömlu fiskverkun.
►Samkeppnin við hinn nýja fisk er að visu óþægileg
fyrir þá, er hafa saltaðan flsk á boðstólum; en jeg
álít þó, að þessi samkeppni verði smám saman þol-
anlegri, þegar fram líða stundir. Aðflutningur af
fiski úr Norðursjónum minnkar stöðugt, sökum rán-
veiða þar, og þegar mikill skortur er orðinn á væn-