Andvari - 01.01.1897, Blaðsíða 62
56
velli og mýrum, en þar vestur af allt að Jökulsá
eru roksandslönd með meltoddum; roksandurinn er
smátt og smátt að þurka upp mýrarnar; má vel sjá
breytinguna fyrir neðan Víðirhól; þar er raýri að
verða að móum; þúturnar eru eins og rústir í fjalla-
mýrum og vex á þeim grávíðir og gul víðir, beitilyng,
fjalldrapi og fl., en í lautunum milli þúfnanna vex
mýrgresi, stör og f'ifa. Kippkorn fyrir sunnan Víð-
irhól er grunnt vatn, vestan undir fjallgarðinum, sem
heitir Viðarvatn, og norðan við bæinn rennur læk-
ur, sem heitir Fjallgarðsá; í hana kemur að norðan
önnur spræna, sem heitir Fagradalsá; hún kemur
úr tjörn norður með hálsunum, sem heitir Bungu-
vatn; renna ár þessar saman og verða að Hólskíl,
sem stefnir suðvestur að Hólsseli og rennur þar í
Jökulsá; Hólskill er á sumrin vatnslítill, en verður
opt ferjuvatn á vorin í leysingum. Bæir bér á fjöll-
unum eru þessir: Víðirhóll, Nýihóll og Fagridalur,
og Hólssel í roksandinum þar suðvestur af; þá er
Grundarhóll suður með Bæjarfjallgarði, og Nýibær
milli Grundarlióls og Grímsstaða; hjá Grundarhól og
Nýjabæ, renna niður smálækir, er heita Vatnsleysur.
Ilóll hét einn af elztu bæjum á Fjöllum; hann var
skammt frá því sem Nýihóll er nú, en eyddist af
sandi. Hólsfjöll eru ágæt til fjárræktar og hafa
duglegir fjárbændur grætt þar mikið fé; en þó fjár-
ræktin sé arðsöm, þá er hún örðug, og gamlir bænd-
ur flytja sig í aðrar sveitir, er þeir hafa grætt fé
og eru farnir að lýjast; nú eru flestir þar fátækir.
Byggðin er mjög afskekkt, og mælt er, að fyrrum
hafi verið töluverður útilegumanna bragur á Fjalla-
bændum, og jafnvel eigi þótt tryggt að gista lijá
þeim; en nú er þetta orðið á annan veg. Fyrir
vestan Jökulsá hafa fyrr og síðar orðið mikil elds-