Andvari - 01.01.1897, Page 112
30fí
hinum. Það verða þá alls 30—40 þús. á ári. A
siðustu árum haía menn stækkað riðilinn, því þeir
hafa álitið (sem rjett er) að ot smáriðin net spilltu
veiðinni (tækju of smáan fisk).
Skammt frá Apavatni er Laugarvatn í Laugar-
dal; það er miklu minna en Apavatn; en landslagið
í kringum það, botn, jurtagróður, smádýr og fiskar
eins og í Apavatni. Mjer var sagt, að töluvert dýpi
væri í því á einum stað, en ekki gat jeg fundið það.
Silungurinn er nokkuð vænni og netin stórriðnari.
Sjóbirtingur gengur stundum i það eptir Hólaá, er
fellur í Hagaós. Veitt er frá þremur bæjum (Utey,
Laugarvatni og Eyvindartungu) og eingöngu með
lagnetum, en aldrei í vökum.
Úr Ytri Hrepp fór jeg út á Vörðufeil á Skeið-
um, til þess að skoða vatn það, sem er uppi á því.
Fellið er 14—1500' að hæð, flatt að ofan og vatnið
sunnan til á því. Það er allstórt, vogskorið, og lág-
ar grasivaxnar hlíðar umhverfis. Eiríkur bóndi á
Helgastöðum er vatninu gagnkunnugur og fylgdi
hann mjer upp. Jeg kannaði það að eins með fram
landi, því enginn bátur er við það. Ekki gat Eirik-
ur sagt með vissu, hve djúpt það væri, en ekki
kvaðst hann hafa sjeð i botn gegnum tæran ís, en
djúpt ætla menn það sje og er það líklegt eptir
landslaginu kringum það að dæma. Með fram landi
er stór möl í botni, en lengra úti leðjubotn. Fyrir
utan mölina er ríkulegur jurtagróður (þúsundblað
og vatnsaxteg.) A þessum jurtum var mjög mikið
af kuðungaeggjum og ótal kuðungar, og sumir all-
stórir voru reknir upp; af brunnklukkum, mýflugu-
og brossafiugulirfum var þar töluvert og einnig af
smákröbbum. Hornsili sá jeg í vatninu og mikið
rekið upp af þeim dauðum; sum þeirra voru óvana-