Andvari - 01.01.1897, Page 90
84
20 árum. Þær komu í'ram á þingi 5. júlí 1845, og
var kosin þriggja manna nefnd til að íhuga málið;
hlutu þeir kosningu: Björn sýslumaður Blöndal,
Hannes prófastur Stephensen á Hólmi og Þorvaldur
umboðsmaður Sivertsen í Hrappsey. Alitsskjal þing-
nefndarinnar kom fram á þingfundi 14. júlí og þá
tekið til umræðu. Nefndin fór þar ómjúkum orðum
um ákvæði 6. gr. um 5 ára vinnutímann fyrir fram-
færslurjetti og segir, að hann sje bæði ósanngjarn,
óhagTcvœmur og spilli hugsunarhœtti manna og breytni
þeirra; segir og, að á þeim 11 ára tima, er reglu-
gjörðin hafi gilt, hafi sveitarþyngslin aukizt um þriðj-
ung, og kenna þeir það mestmegnis því, hve sveit-
festistíminn sje skammfengjnn. Þá gjörir nefndin
eigi alllítið úr harðýðgi þeirri, er hafi eigi þekkzt
hjer áður, en ákvörðun þessi komi sveitarstjórun-
um til að beita til varnar þyngslum og sveitarvand-
ræðum. Þeir banni t. d. bændum að halda hjú, er
þau fari að eldast eða verða heilsutæp. Af þessu
verði hjúin þurfamenn, þó að þau hefðu vel getað
unnið sjer fyrir viðurværi í nokkur ár. Af sömu á-
stæðum sje jafnvel bjargálnamönnum rýmt burtu af
jörðum og þeir á þann hátt gjörðir að vandræða-
mönnum. Sá ættræknisneisti, sem enn sje eptir í
íbúum iandsins, verði kæfður með þessu mótinu, því
að sveitarstjórnin banni mönnum að annast ættmenn
sfna, þó að þeir hafi vilja til þess, jafnvel feður sfna
og mæður. A þenna hátt verði öldruðum og efna-
litlum mönnum hvergi fritt, nema í framfærsluhreppi
sínum. Þá segir nefndin, að þess sje eigi allfá dæmi,
að fjelitlum bændum og gömlum og heilsubiluðum
hjúum, sem annarsstaðar sje sveitlæg, sje annað-
hvort veittur lítilfjörlegur fátækrastyrkur, áður en
þau hafi dvalið 5 ár í hreppnum, eða gefnar eptir