Andvari - 01.01.1897, Page 74
þessi steinn kastaðist upp úr hinu gamla fari sinu
og færðist nokkra faðma neðar í brekkuna, og snýr
það upp á honum, sem áður var niður. A Sultum
hröpuðu útihús og allur bærinn skemmdist mjög.
Utan við bæinn í Lóni, sem liggur enn vestar við
lónin, inn af Fjallahöfn, sprungu hraunbreiðurnar í
sundur óslitið langan veg að lónunum, sem ná heim
undir bæinn; gaus upp um þær vatn og leir margra
faðma hátt, lika vall smágrjót upp úr sprungunum
og steinar köstuðust af jafnsléttu til vesturs upp á
sprungubarmana; menn tóku líka eptir því, að gaml-
ar gjár færðust ýmist sundur eða saman; gömul
vatnsgjá færðist saman allt að alin. Ur björgunum
á austanverðu Tjörnesi varð ógurlegt grjóthrun. Ar
og iækir fylltust af vatni og fióðu yfir bakka sina;
uppsprettur og önnur vötn urðu hvitmórauð að lit
og Stórá varð eins mikil og i mesta jökulvexti á
sumri. Eptir hina miklu landskjálfta um morguninn
25. janúar fundust við og við smákippir strjálir og
litlir, en enginn jarðskjálfti, sem mikið kvað að.
Þessi jarðskjálfti hafði aðalstöðvar sinar og upp-
tök vestan til í Kelduhverfi, en fannst þó viða ann-
arsstaðar; 1 Eyjafirði fundust allsnarpir kippir og svell
rifnuðu víða og hestar fældust í haga við brakið og
brestina; á Húsavik fannst lítið til jarðskjálftans, en
austur i Axarfjarðar- og Núpasveitum var hann all-
harður; menn duttu sumstaðar i Axarfirði og gátu
eigi komizt út; steinhrun varð mikið úr Axarnúpi,
svo heyrðist langar leiðir; uppsprettur urðu kolrnó-
rauðar en sumar hurfu; ís á vötnum kubbaðist sund-
ur í ótal stykki og vatnið spýttist hátt upp um
sprungurnar. I Þistilfirði urðu harðir kippir, altaris-
tafla féll niður á Svalbarði o. s. frv.; aptur var það