Uppeldi og menntun - 16.02.2007, Page 11
MAR ÍA STE INGR ÍMSDÓTT I R
11
nýliðinn þarf að læra á stuttum tíma en þrátt fyrir mikið álag og þreytu geti hann
sýnt áhuga á að gera vel. Þriðja tímabilið nefnir Moir vonbrigði (disillusionment). Þá
fer vinnuálagið að hafa áhrif á nýliðann; honum finnast skuldbindingar of miklar og
hlutirnir ekki ganga eins og væntingar hans stóðu til. Óöryggi um eigin framgang og
metnað gerir vart við sig og leiðir jafnvel til lægra sjálfsmats og efa um eigið ágæti.
Tímabil sem algengt er að hefjist í janúar, eftir jólafrí, kallar Moir að eflast á ný
(rejuvenation). Þá kviknar nýr neisti hjá nýliðum og þeir líta af meiri skilningi og
raunsæi á starfið. Þeir hafa líka öðlast aukið öryggi og færni til að takast á við verk-
efnið og ýmsa þætti sem tengjast því. Moir segir að á þessu tímabili fari nýliðarnir að
huga meira en áður að námskránni, kennsluaðferðum og skipulagi kennslunnar til
lengri tíma. Þegar líður að því að skólaári ljúki hefst tímabil íhugunar (reflection) þar
sem nýju kennararnir horfa til liðins tíma og meta hvað gekk vel og hvað gekk miður.
Þeir fara að líta til framtíðar og gera áætlanir um næsta skólaár. Þar með hefst tímabil,
líkt hinu fyrsta, þar sem þeir fara að gera sér væntingar til starfsins á ný (sjá mynd 1).
Mynd 1 – Tilfinningatímabil kennara á fyrsta starfsári (Moir 1999:21).
Verðandi kennarar gera sér ákveðnar hugmyndir um það hvernig starfið verði og
iðulega eru þær ekki á rökum reistar. Þeim hættir til að sjá hlutverk kennarans í hill-
ingum og eiga sér oft fyrirmyndir frá eigin skólagöngu. Margir ganga inn í starfið með
löngun til og áhuga á að hafa áhrif á gang mála, jafnvel að geta mótað framtíðina með
vinnu sinni sem kennarar (Moir, 1999). Schriever (1999) segir að smátt og smátt renni
það upp fyrir hinum nýja kennara hver raunveruleiki starfsins sé. Ábyrgðin sem í því
felist og glíman við kennsluna valdi honum áhyggjum og öll sú kunnátta og færni sem
hann þarf að standa skil á fari að íþyngja honum.
Hjá Hallford (1999) koma fram svipaðar hugmyndir um starfsþroska nýrra kenn-
ara og hjá Moir. Hann byggir umfjöllun sína á Fuller frá 1969, sem álítur að nýliðar
í kennslu gangi í gegnum nokkur stig í starfsþroskaferlinu. Hallford segir að í fyrstu
hafi nýliðinn áhyggjur af sjálfum sér, en því næst hugleiði hann faglegar væntingar
og reyni að sætta sig við hlutina eins og þeir eru. Hann hugsi um eigin hæfni í starfi,
samband sitt við nemendur, hafi áhyggjur af námsþörfum nemenda og að lokum nái
hann því stigi að hann vilji hafa áhrif til góðs á nám nemenda sinna. Alls ekki sé víst
að allir nýir kennarar upplifi þessi tímabil á fyrsta starfsári. Það skipti máli hvernig
vinnustaðurinn taki á móti þeim.
Ágúst Sept. Okt. Nóv. Des. Jan. Feb. Mars Apríl Maí Júní Júlí
Eftirvænting
Að halda velli
Vonbrigði
Að eflast á ný
Íhugun
Eftirvænting